{"title":"YRJA","description":"","products":[{"product_id":"yrja-peysa","title":"Yrja peysa","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞessi mjúka og hlýja peysa er prjónuð úr grófu garni á stóra prjóna í áferðarmynstri. Mynstrið er einfalt og auðlært en setur mikinn svip á peysuna. Garnið í peysuna er úr náttúrulegum efnum; Alpaca, bómull og merinoull. Peysan er hönnuð í yfirstærð (oversized).\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónað er neðan frá og upp og ermarnar eru prjónaðar við bolinn með laskaúrtökum. Hálsmálið er mótað með því að prjóna fram og til baka. Fellt er af í hálsmáli og lykkjur svo teknar upp til að prjóna stroffið, sem síðan er lykkjað niður að innanverðu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir: \u003c\/strong\u003eVal er um 9 stærðir. Bolvídd peysu: 97-102-110-117-123-130-137-143-150 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e12 lykkjur og 14 umferðir í mynsturprjóni = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003eHringprjónar og sokkaprjónar nr. 7 og 9 eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003eDrops Wish (50 gr = 70 m). Hér sýnt í litnum Hvít þoka (nr 04). Garnmagn í peysu er u.þ.b. 500-500-550-600-650-700-750-750-800 g. Eins má nota Drops Andes eða blanda saman tveim eða fleiri fíngerðari garntegundum til að fá rétta prjónfestu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e3-4 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap. Auk þess er notast við ítalskt uppfit, prjónað áferðarmynstur og gerðar úrtökur og útaukningar til hægri og vinstri. Í löskum er tekið úr með því að prjóna 3 lykkjur saman bæði frá réttu og röngu. Helsta tækni er útskýrð í uppskriftinni og með hlekkjum á skýringarmyndbönd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Mælt er með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti. \u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42616748998835,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/20211123_121808-scaled.jpg?v=1690755568"},{"product_id":"yrja-barnapeysa","title":"YRJA BARNAPEYSA","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞessi mjúka peysa er barnaútgáfan af Yrju dömupeysunni. Hún er fljótprjónuð, mynstrið er einfalt og auðlært en setur mikinn svip á peysuna. Prjónað er neðan frá og upp og ermarnar eru prjónaðar við bolinn með laskaúrtökum. Hálsmálið er mótað með því að prjóna fram og til baka. Tvöfalt stroff er í hálsmáli. Garnið í peysuna er úr náttúrulegum efnum; Alpaca, bómull og merinoull, hlýtt, létt og lipurt. Peysan er í víðari kantinum og sniðið gerir ráð fyrir um 13-20 sm í hreyfivídd, mestri í stærri stærðunum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir: \u003c\/strong\u003e2 – 4 – 6 – 8 – 10 -12 – 14 ára.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e14 lykkjur og 24 umferðir í mynsturprjóni = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003eHringprjónar og sokkaprjónar nr. 4 og 6 eða sú stærð sem gefur rétta prjónafestu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003eCaMaRose Snefnug (50 gr = 110 m) eða sambærilegt blásið garn af sama grófleika. Áætluð garnþörf er u.þ.b. 200 – 200 – 250 – 250 – 300 – 300 – 350 gr.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e3 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap. Auk þess er notast við ítalskt uppfit, prjónað áferðarmynstur, gerðar úrtökur og útaukningar til hægri og vinstri. Í löskum er tekið úr með því að prjóna 3 L saman bæði frá réttu og röngu. Helsta tækni er útskýrð í uppskriftinni og með hlekkjum á skýringarmyndbönd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Mælt er með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti. \u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42616749260979,"sku":"","price":1090.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/20211207_121052-scaled.jpg?v=1690755939"},{"product_id":"yrja-hufa-og-vettlingar","title":"YRJA HÚFA OG VETTLINGAR","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eYrjuhúfan og vettlingarnir eru fljótprjónuð á grófa prjóna úr mjúku, náttúrulegu garni. Flott mynstrið gerir áferðina sérstaka og prjónaskapinn áhugaverðan. Húfan er með tvöföldu þéttprjónuðu stroffi og því mjög hlý.\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003eBæði húfan og vettlingarnir eru prjónuð frá stroffi en eftir það tekur við einfalt áferðarmynstur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir húfu\/höfuðmál:\u003c\/strong\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003eS-M (um 52-54 sm) – L-XL (um 56-58 sm).\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir vettlinga\/ummál:\u003c\/strong\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003eS-M (um 20 sm) – L-XL (um 22 sm).\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e12 lykkjur og 14 umferðir í áferðarmynstri = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003eStuttir hringprjónar og sokkaprjónar nr. 6, 7 og 9 eða sú stærð sem þarf til að ná réttri prjónfestu. Ef töfralykkja er notuð þarf langa hringprjóna í hverri stærð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn: \u003c\/strong\u003eDrops Wish; 150 – 200 gr. Sýnt á mynd í litnum Hvít þoka (04). Einnig má nota Drops Andes sem er með sömu prjónfestu, eða prjóna fleiri þræði af fíngerðara garni saman.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e2-3 af 5. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Ítalskt uppfit, útaukningar og úrtökur til hægri og vinstri. Skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru aftast í uppskriftinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Mælt er með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti. \u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42616749326515,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/huvet.jpg?v=1690755782"},{"product_id":"yrja-jakkapeysa","title":"YRJA JAKKAPEYSA","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞessi mjúka og hlýja peysa er prjónuð úr grófu garni á stóra prjóna í áferðarmynstri. Mynstrið er einfalt og auðlært en setur mikinn svip á peysuna. \u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónað er neðan frá og upp, fram og til baka. Boðungarnir eru prjónaðir um leið og bolurinn. Ermarnar eru prjónaðar við bolinn með laskaúrtökum. Frágangur er því sáralítill, aðeins þarf að lykkja ermar við bol í holhönd og lykkja boðungana saman í hnakkanum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir: \u003c\/strong\u003eUppskriftin er í 6 stærðum; bolvídd peysu: 98-104-111-118-124-131 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e12 lykkjur og 14 umferðir í mynsturprjóni = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003eHringprjónar og sokkaprjónar nr. 6 og 9 eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003eDrops Wish (50 gr = 70 m). Garnmagn í peysu er u.þ.b. 550-600-650-650-700-750-800 gr. Nota má annað garn af sama grófleika, t.d. Drops Andes, eða prjóna með tveimur eða fleiri þráðum sem saman gefa rétta prjónfestu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e3 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap. Auk þess er notast við ítalskt uppfit, prjónað áferðarmynstur, gerðar úrtökur og útaukningar til hægri og vinstri og hnappagöt. Í löskum er tekið úr með því að prjóna 3 lykkjur saman. Helsta tækni er útskýrð í uppskriftinni og með hlekkjum á skýringarmyndbönd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Eindregið er mælt með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við 4 skipti. \u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42616749621427,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/314987543_1491772197992633_7568716017220824066_nss.jpg?v=1690755650"}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/collections\/20221009_174524s_da3c5bce-9f3b-4347-95e9-fa4892f3ab8f.jpg?v=1691175345","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/en-is\/collections\/yrja.oembed","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}