{"product_id":"darri-ungbarnapeysa","title":"DARRI UNGBARNAPEYSA","description":"\u003cp\u003eDarri er þykk peysa fyrir þau minnstu. Peysan er fljótprjónuð með rúmu og góðu sniði. Hálsmálið er mótað lægra að framan svo peysan bungi ekki út á bringunni. Rendurnar setja krúttlegan svip á peysuna og gefa færi á alls kyns litaspili, bæði fyrir stráka og stelpur. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePrjónað er frá hálsmáli. Byrjað er á stroffi, svo  gerðar stuttar umferðir (má sleppa) ásamt því að aukið er út við laska. Eftir stuttu umferðirnar er berustykkið prjónað í hring. Þegar kemur að handvegi er skipt í bol og ermar sem áfram eru prjónuð í hring. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærðir:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e3-6-9-12-24-48 mánaða\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\/ Bolvídd peysu 52-57-59-63-66-70 sm. (Fatastærð u.þ.b. 62-68-74-80-92-104).\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e18\u003c\/span\u003e lykkjur og 24 umferðir í sléttu prjóni = 10*10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e Fyrir bol og ermar: Stuttir hringprjónar og sokkaprjónar nr. 5 eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu. Fyrir stroff: Sokkaprjónar og hringprjónar nr. 3½. Einn langur hringprjónn í hvorri stærð er nóg ef töfralykkja er notuð. \u003c\/span\u003e\u003cspan style=\"font-size: 0.875rem;\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGarn:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eGarn að eigin vali sem hæfir prjónfestunni.\u003cspan\u003e Peysan á myndinni er prjónuð úr Lana Gatto Maxi Soft (50 gr = 90 m) í litum 13777 - dökk beige, 978 - off white og 20206 - dökkgrár\u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e. Sé annað garn valið þarf að huga að garnþörf. Mælt er með náttúrulegu garni sem er ekki of loðið. \u003c\/span\u003eÞað þarf u.þ.b. 100-100-150-150-150-200 g af aðallit í peysuna, um 50-50-100-100-100-100 g af ljósari litnum og 50 g í allar stærðir af dekksta litnum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e 2-\u003c\/span\u003e3 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap s.s. að fitja upp, prjóna slétt og brugðið, auka út til hægri og vinstri, fækka lykkjum með því að prjóna 2 saman til hægri og vinstri, og fella af. Laskaútaukningar og stuttar umferðir (German short rows) Helstu skýringar á prjónatækni eru í uppskriftinni ásamt vísun á leiðbeiningamyndbönd. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44338284691635,"sku":null,"price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/fb500.jpg?v=1736703188","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/en-is\/products\/darri-ungbarnapeysa","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}