{"product_id":"valentina-barnapeysa","title":"VALENTINA UNGBARNAPEYSA","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞað er svo gaman að klæða lítil kríli í krúttlega flík. Peysan Valentína er einmitt þannig, hún er sæt og fín og umvefur lítinn unga með hjörtum og kærleika. Peysan fór í prufuprjón á Valentínusardaginn og það var því borðleggjandi hvaða nafn hún fengi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónað er frá hálsmáli. Byrjað er á stroffi, berustykkið svo prjónað með laskaútaukningum og stuttum umferðum. Þegar kemur að handvegi er skipt í bol og ermar sem áfram eru prjónuð í hring. Val er um stuttar eða venjulegar ermar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e 3-6-9-12-24-48 mánaða \u003c\/span\u003e\/ Bolvídd peysu 51-55-58-62-66-69 sm. (Fatastærð u.þ.b. 62-68-74-80-92-104)\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e 22\u003c\/span\u003e lykkjur í sléttu prjóni = 10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e  Fyrir bol og ermar: Stuttir hringprjónar og sokkaprjónar nr. 3½ - 4 eða sú stærð sem gefur rétta prjónafestu. Fyrir stroff: Sokkaprjónar og hringprjónar nr. 3. Einn langur hringprjónn í hvorri stærð er nóg ef töfralykkja er notuð.  \u003c\/span\u003e\u003cspan style=\"font-size: 0.875rem;\"\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e Garn að eigin vali sem hæfir prjónfestunni (DK grófleiki). \u003c\/span\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003ePeysan á myndinni er prjónuð úr DUO frá Sandnes garn (50 gr = 115 m) í litum 3543 - Warm Brown og 1015 - Kitt. Sé annað garn valið þarf að huga að garnþörf. Mælt er með náttúrulegu garni. \u003c\/span\u003eÞað þarf u.þ.b. 100-100-150-150-150-200 g af aðallit og 50 g af af mynsturlit í langerma peysu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e3 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap s.s. að fitja upp, prjóna slétt og brugðið, auka út til hægri og vinstri, fækka lykkjum með því að prjóna 2 saman, og fella af. Auk þess eru gerðar þýskar stuttar umferðir á sama tíma og aukið er út við laska. Prjónað er litamynstur eftir mynsturmynd. Fellt er af með ítalskri affellingu ef vill. Helstu skýringar á prjónatækni eru í uppskriftinni ásamt vísun á leiðbeiningamyndbönd. \u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja Knit","offers":[{"title":"Íslenska","offer_id":43187666452659,"sku":null,"price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/v400_84d5342c-2259-4d24-a2a7-12ada350de2d.jpg?v=1710932382","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/en-is\/products\/valentina-barnapeysa","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}