{"product_id":"yrja-peysa","title":"Yrja peysa","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞessi mjúka og hlýja peysa er prjónuð úr grófu garni á stóra prjóna í áferðarmynstri. Mynstrið er einfalt og auðlært en setur mikinn svip á peysuna. Garnið í peysuna er úr náttúrulegum efnum; Alpaca, bómull og merinoull. Peysan er hönnuð í yfirstærð (oversized).\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónað er neðan frá og upp og ermarnar eru prjónaðar við bolinn með laskaúrtökum. Hálsmálið er mótað með því að prjóna fram og til baka. Fellt er af í hálsmáli og lykkjur svo teknar upp til að prjóna stroffið, sem síðan er lykkjað niður að innanverðu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir: \u003c\/strong\u003eVal er um 9 stærðir. Bolvídd peysu: 97-102-110-117-123-130-137-143-150 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e12 lykkjur og 14 umferðir í mynsturprjóni = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003eHringprjónar og sokkaprjónar nr. 7 og 9 eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003eDrops Wish (50 gr = 70 m). Hér sýnt í litnum Hvít þoka (nr 04). Garnmagn í peysu er u.þ.b. 500-500-550-600-650-700-750-750-800 g. Eins má nota Drops Andes eða blanda saman tveim eða fleiri fíngerðari garntegundum til að fá rétta prjónfestu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e3-4 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap. Auk þess er notast við ítalskt uppfit, prjónað áferðarmynstur og gerðar úrtökur og útaukningar til hægri og vinstri. Í löskum er tekið úr með því að prjóna 3 lykkjur saman bæði frá réttu og röngu. Helsta tækni er útskýrð í uppskriftinni og með hlekkjum á skýringarmyndbönd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Mælt er með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti. \u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42616748998835,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/20211123_121808-scaled.jpg?v=1690755568","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/en-is\/products\/yrja-peysa","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}