{"title":"LAUFEY","description":"","products":[{"product_id":"laufey-vesti","title":"LAUFEY VESTI","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eLaufeyjarvesti er prjónað í fallegu blaðmynstri. Vestið passar bæði við kjóla og buxur og fer jafn vel við fínar skyrtur og einfalda boli – eða bara eitt og sér. \u0026nbsp;Fislétt en hlýtt og notalegt vesti með mikið notagildi, hvort sem er íslenskt sumar eða vetur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónað er neðan frá í hring. Þegar kemur að handvegi skiptist stykkið í tvennt og er hvor hluti prjónaður fram og til baka. Hálsmál er mótað með því að prjóna hvort axlarstykki fyrir sig. Lykkjað er saman á öxlum og í lokin eru prjónaðar upp lykkjur í hálsmáli og handvegi til að gera stroff. Stuttar umferðir eru notaðar til að móta stroffið við handveg.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e1 – 2 – 3 \/ Bolvídd vestis u.þ.b. 100 – 110 – 120 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta (til viðmiðunar) :\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eStærð 1: 13 lykkjur, stærð 2: 12 lykkjur og stærð 3: 11 lykkur í sléttu prjóni = 10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul data-mce-fragment=\"1\"\u003e\n\u003cli data-mce-fragment=\"1\"\u003eFyrir stærð 1: 80 sm hringprjónar nr. 4 og 6 og 40 sm hringprjónar nr. 4.\u003c\/li\u003e\n\u003cli data-mce-fragment=\"1\"\u003eFyrir stærð 2: 80 sm hringprjónar nr. 4,5 og 6,5 og 40 sm hringprjónar nr. 4,5.\u003c\/li\u003e\n\u003cli data-mce-fragment=\"1\"\u003eFyrir stærð 3: 80 sm hringprjónar nr. 5 og 7 og 40 sm hringprjónar nr. 5\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003eGarn að eigin vali sem gefur rétta prjónfestu. Vestin á myndunum eru prjónuð úr tveim þráðum af Brushed Alpaca Silk frá Drops (25 gr = 140 m). Val á garni hefur áhrif á áferð, útlit og þyngd flíkurinnar. Það þarf um 175 g \/ 980 m í vestið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e4 af 5. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Að fitja upp, prjóna slétt og brugðið, fella af, prjóna upp lykkjur, prjóna stuttar umferðir og auka út og fækka lykkjum til hægri og vinstri. Prjónað er mynstur skv. teikningu þar sem m.a. er slegið upp á prjóninn og 3 lykkjur prjónaðar saman slétt og brugðið. Mynsturteikning, helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni.\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42616750014643,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/fram2800.jpg?v=1709374120"},{"product_id":"laufey-scarf-knitting-pattern","title":"LAUFEY HYRNA","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eLaufeyjarhyrnan er prjónuð í fallegu blaðmynstri. Mynstrið hefur þann kost að vera fallegt bæði á réttunni og röngunni og er mjög skemmtilegt að prjóna. Fislétt en hlý og notaleg hyrna með mikið notagildi, hvort sem er íslenskt sumar eða vetur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eHægt er að prjóna hyrnuna í þeirri stærð sem hver vill en til viðmiðunar eru eftirfarandi stærðir í uppskriftinni:\u0026nbsp;\u003c\/p\u003e\n\u003cul data-mce-fragment=\"1\"\u003e\n\u003cli data-mce-fragment=\"1\"\u003e28*66 sm, nær einu sinni um hálsinn og er bundin í hnakkann.\u003c\/li\u003e\n\u003cli data-mce-fragment=\"1\"\u003e58*115 sm, nær tvisvar um hálsinn, bundið að framan.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta (til viðmiðunar):\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;U.þ.b. 18 L í sléttu prjóni = 10 sm á breidd. Hægt er að prjóna í hvaða prjónfestu sem er, eftir því hvaða garn er valið og hvaða grófleika og þykkt er óskað eftir að hyrnan hafi.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u0026nbsp;\u003c\/strong\u003eLangir hringprjónar sem gefa hæfilega prjónfestu út frá því garni sem valið er. Til viðmiðunar: 80-120 sm langir hringprjónar nr. 5, fyrir það garn sem gefið er upp í uppskriftinni.\u0026nbsp;\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003eLjósa hyrnan á myndinni er prjónuð úr tveim þráðum af\u0026nbsp; Cashmere Me frá Gepard (25 gr = 175 m) og fóru 3 hnotur í hana (stærri hyrna). Bláa hyrnan er prjónuð úr tveim þráðum af Midnatssol frá CaMaRose (25 g = 200 m) og fór ein hnota í hana (minni hyrna). Ef prjónað er með einum þræði af grófara garni (worsted grófleiki) má helminga garnmagnið sem þarf.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eVal á garni hefur áhrif á áferð, útlit og þyngd hyrnunnar.\u0026nbsp;\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e3 af 5. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Að fitja upp, prjóna slétt og brugðið, fella af. Prjónað er mynstur skv. mynsturmynd þar sem m.a. er slegið upp á prjóninn og 3 lykkjur prjónaðar saman slétt (tvöföld miðjuúrtaka) og brugðið. Mynsturteikning, helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni.\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Íslenska","offer_id":43395767959731,"sku":"","price":790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"English","offer_id":43395767992499,"sku":"","price":790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/Laufey_Reversible_Lace_Scarf.jpg?v=1779908794"}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/collections\/Laufey_collection_800.jpg?v=1713183406","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is-is\/collections\/laufey.oembed","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}