{"title":"NÝTT","description":"","products":[{"product_id":"valentina-barnapeysa","title":"VALENTINA UNGBARNAPEYSA","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞað er svo gaman að klæða lítil kríli í krúttlega flík. Peysan Valentína er einmitt þannig, hún er sæt og fín og umvefur lítinn unga með hjörtum og kærleika. Peysan fór í prufuprjón á Valentínusardaginn og það var því borðleggjandi hvaða nafn hún fengi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónað er frá hálsmáli. Byrjað er á stroffi, berustykkið svo prjónað með laskaútaukningum og stuttum umferðum. Þegar kemur að handvegi er skipt í bol og ermar sem áfram eru prjónuð í hring. Val er um stuttar eða venjulegar ermar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e 3-6-9-12-24-48 mánaða \u003c\/span\u003e\/ Bolvídd peysu 51-55-58-62-66-69 sm. (Fatastærð u.þ.b. 62-68-74-80-92-104)\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e 22\u003c\/span\u003e lykkjur í sléttu prjóni = 10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e  Fyrir bol og ermar: Stuttir hringprjónar og sokkaprjónar nr. 3½ - 4 eða sú stærð sem gefur rétta prjónafestu. Fyrir stroff: Sokkaprjónar og hringprjónar nr. 3. Einn langur hringprjónn í hvorri stærð er nóg ef töfralykkja er notuð.  \u003c\/span\u003e\u003cspan style=\"font-size: 0.875rem;\"\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e Garn að eigin vali sem hæfir prjónfestunni (DK grófleiki). \u003c\/span\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003ePeysan á myndinni er prjónuð úr DUO frá Sandnes garn (50 gr = 115 m) í litum 3543 - Warm Brown og 1015 - Kitt. Sé annað garn valið þarf að huga að garnþörf. Mælt er með náttúrulegu garni. \u003c\/span\u003eÞað þarf u.þ.b. 100-100-150-150-150-200 g af aðallit og 50 g af af mynsturlit í langerma peysu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e3 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap s.s. að fitja upp, prjóna slétt og brugðið, auka út til hægri og vinstri, fækka lykkjum með því að prjóna 2 saman, og fella af. Auk þess eru gerðar þýskar stuttar umferðir á sama tíma og aukið er út við laska. Prjónað er litamynstur eftir mynsturmynd. Fellt er af með ítalskri affellingu ef vill. Helstu skýringar á prjónatækni eru í uppskriftinni ásamt vísun á leiðbeiningamyndbönd. \u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja Knit","offers":[{"title":"Íslenska","offer_id":43187666452659,"sku":null,"price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/v400_84d5342c-2259-4d24-a2a7-12ada350de2d.jpg?v=1710932382"},{"product_id":"audur-mohair-sweater-knitting-pattern","title":"AUÐUR SWEATER","description":"\u003cp\u003eAuður er einföld og stílhrein peysa sem auðvelt er að prjóna. Hún er með skemmtilegu axlarsniði en að öðru leyti bein og mátast vel. Fínlegt garnið gerir auðvelt að dressa peysuna upp og niður. Þessi var hugsuð sem jólapeysa fyrir mig og því valdi ég þennan ótrúlega fallega rauða lit - sem erfitt er að fanga á ljósmynd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePrjónað er frá hálsmáli og niður, flækjustigi er haldið í lágmarki og frágangur lítill. Góð byrjendauppskrift eða Netflix-vænt verkefni fyrir vanari prjónara.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærðir:\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e1 – 2 – 3 – 4 – 5 – 6\u0026nbsp; \/ Bolvídd peysu 93 – 100 – 108 –\u0026nbsp; 118 – 128 - 138 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e16 lykkjur í sléttu prjóni = 10 sm á breidd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eLangir hringprjónar (80-100 sm) og ermaprjónar\u0026nbsp; nr. 5 1\/2\u0026nbsp; eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu.\u0026nbsp; Ef töfralykkja er notuð þarf ekki ermaprjóna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGarn:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003ePrjónað er með tveim þráðum af silki mohair. Ég notaði Gepard Kid Seta (25 g = 210 m) í lit 1008 Red og get mælt með því garni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞað þarf u.þ.b. 150 – 175 – 175 til 200 – 200 – 225 – 250 g í peysuna en þar sem við prjónum öll með okkar eigin lagi er ekki hægt að gefa upp alveg nákvæma tölu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e2 af 5. Það sem þarf að kunna (eða læra): Uppfit og affelling. Prjónað slétt í hring og fram og til baka. Útaukning til hægri og vinstri. Úrtaka í stærstu stærðunum. Prjónaðar upp lykkjur í handvegi eða ermar saumaðar í. Helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni.\u003cem\u003e\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja Knit","offers":[{"title":"Íslenska","offer_id":45531080032435,"sku":null,"price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"English","offer_id":45531080065203,"sku":null,"price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/Audur_1.jpg?v=1779538431"},{"product_id":"darri-ungbarnapeysa","title":"DARRI UNGBARNAPEYSA","description":"\u003cp\u003eDarri er þykk peysa fyrir þau minnstu. Peysan er fljótprjónuð með rúmu og góðu sniði. Hálsmálið er mótað lægra að framan svo peysan bungi ekki út á bringunni. Rendurnar setja krúttlegan svip á peysuna og gefa færi á alls kyns litaspili, bæði fyrir stráka og stelpur. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePrjónað er frá hálsmáli. Byrjað er á stroffi, svo  gerðar stuttar umferðir (má sleppa) ásamt því að aukið er út við laska. Eftir stuttu umferðirnar er berustykkið prjónað í hring. Þegar kemur að handvegi er skipt í bol og ermar sem áfram eru prjónuð í hring. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærðir:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e3-6-9-12-24-48 mánaða\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\/ Bolvídd peysu 52-57-59-63-66-70 sm. (Fatastærð u.þ.b. 62-68-74-80-92-104).\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e18\u003c\/span\u003e lykkjur og 24 umferðir í sléttu prjóni = 10*10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e Fyrir bol og ermar: Stuttir hringprjónar og sokkaprjónar nr. 5 eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu. Fyrir stroff: Sokkaprjónar og hringprjónar nr. 3½. Einn langur hringprjónn í hvorri stærð er nóg ef töfralykkja er notuð. \u003c\/span\u003e\u003cspan style=\"font-size: 0.875rem;\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGarn:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eGarn að eigin vali sem hæfir prjónfestunni.\u003cspan\u003e Peysan á myndinni er prjónuð úr Lana Gatto Maxi Soft (50 gr = 90 m) í litum 13777 - dökk beige, 978 - off white og 20206 - dökkgrár\u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e. Sé annað garn valið þarf að huga að garnþörf. Mælt er með náttúrulegu garni sem er ekki of loðið. \u003c\/span\u003eÞað þarf u.þ.b. 100-100-150-150-150-200 g af aðallit í peysuna, um 50-50-100-100-100-100 g af ljósari litnum og 50 g í allar stærðir af dekksta litnum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e 2-\u003c\/span\u003e3 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap s.s. að fitja upp, prjóna slétt og brugðið, auka út til hægri og vinstri, fækka lykkjum með því að prjóna 2 saman til hægri og vinstri, og fella af. Laskaútaukningar og stuttar umferðir (German short rows) Helstu skýringar á prjónatækni eru í uppskriftinni ásamt vísun á leiðbeiningamyndbönd. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44338284691635,"sku":null,"price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/fb500.jpg?v=1736703188"},{"product_id":"stilla-wristwarmers-knitting-pattern","title":"STILLA HANDSTÚKUR","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eStundum er einfalt bara best. Stilla handstúkurnar eru lausar við allt prjál en stílhreinar og klassískar í einfaldleika sínum. Góðar úti vor og haust en líka inni þegar vetur er kaldur. Þær eru fljótprjónaðar og tilvalin uppskrift fyrir byrjendur sem lengra komna prjónara.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u0026nbsp;\u003c\/strong\u003e1 (S-M) og 2 (L-XL).\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e21 lykkja í sléttu prjóni = 10 sm á breidd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eSokkaprjónar nr. 4 eða sú stærð sem þarf til að ná réttri prjónfestu. Ef töfralykkja er notuð þarf langan hringprjón nr. 4.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003eGarn sem hæfir prjónafestunni. Stúkurnar á myndunum eru prjónaðir úr Puna frá Drops (50 gr = 110 m) í lit 04, grábrúnn. Það þarf um 50-100 g af garni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e2 af 5. Það er engin flókin tækni í þessari uppskrift; hefðbundin uppfit og affelling, einfalt stroff, slétt prjón og útaukningar til hægri og vinstri. Skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru aftast í uppskriftinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Eindregið er mælt með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við 4 skipti.\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Íslenska","offer_id":44375789076659,"sku":"","price":590.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"English","offer_id":44375789043891,"sku":"","price":590.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/Stilla_Wrist_Warmers_1.jpg?v=1779714249"},{"product_id":"askur-domupeysa","title":"ASKUR DÖMUPEYSA","description":"\u003cp\u003eVinsæla Askur peysan er nú komin í dömuútgáfu. Peysan er með áferðarmynstri á bol og skemmtilegum smáatriðum í hönnun. Breiður laski teygir sig frá hálsmáli niður berustykkið, í hliðarnar á bolnum og undir ermum, niður að stroffi sem er með klauf í hliðum. Sniðið er frekar vítt með hálsmáli sem er lægra að framan en aftan, svo peysan fer vel um háls og herðar.\u0026nbsp;\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePrjónað er frá hálsmáli og niður. Í fyrstu er prjónað fram og til baka til að móta hálsmálið en síðan tengt í hring. Laskalykkjur skilja að ermar og bak- og framstykki, og er aukið út frá þeim niður berustykkið. Skipt er í bol og ermar sem hvort tveggja eru prjónuð í hring. Í lokin eru teknar upp lykkjur í hálsmáli til að prjóna stroff. Auðvelt er að aðlaga sídd og ermalengd að þörfum notandans.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærðir:\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e1 – 2 – 3 – 4 – 5 – 6 \/ Bolvídd peysu 96 – 104 – 113 – 120 – 127 – 136 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e16 lykkjur og 20 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eLangir og stuttir hringprjónar nr. 5 og 6, sokkaprjónar nr. 5 – eða sú prjónastærð sem gefur rétta prjónfestu. Ef töfralykkja er notuð þarf ekki sokka- og ermaprjóna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGarn:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003eUllar\/alpacagarn sem gefur rétta prjónfestu. Peysan á myndinni er prjónuð í Eco+ frá Cascade ( 250 g =\u0026nbsp; 437 m) í lit 3103 Legion Blue. Garnþörf u.þ.b. 800 – 900 – 1000 – 1100 – 1200 – 1300 m (til viðmiðunar). Peysan hefur komið vel út í Vams frá Rauma og svo er líka hægt að nota tvær garntegundir saman til að fá skemmtilega hreyfingu í prjónið, til dæmis Drops Karisma og Flora saman.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e3-4 af 5. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Útaukning og úrtaka til hægri og vinstri, áferðarmynstur prjónað fram og til baka og í hring samtímis því að gerðar eru laskaútaukningar og hálsmál mótað. Lykkjur prjónaðar upp í hálsmáli, ítölsk affelling (ef vill). Mynsturteikningar sem sýna útaukningar og hálsmál, helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni.\u003cem\u003e\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44884424687795,"sku":null,"price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/AskurD_1.jpg?v=1779743372"}],"url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is-is\/collections\/nytt.oembed","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}