Um Yrju og Eddu
Hæ – ég er Edda, heilinn og hendurnar á bak við Yrju knit. Velkomin í vefbúðina mína.
Ég hef inngróna þörf fyrir að skapa. Stundum bara eitthvað eða hvað sem er. Raða, breyta, bæta og búa til. Sjá hvað gerist. Finna út úr hlutum. Enda alin upp með handverks- og listafólk í kring um mig, sem aldrei féll verk úr hendi.
Ég hef prófað ýmsa farvegi fyrir þessa þörf. Hef saumað föt og prjónað frá því ég var unglingur, teiknað og málað, smíðað skart og jafnvel stöku húsgagn. Prjónaskapur hefur tekið yfir síðustu ár af ýmsum ástæðum. Það er hægt að prjóna nánast hvar sem er og ég þarf ekki að leggja undir mig heimilið (þótt það gerist reyndar stundum) eða stinga af á vinnustofu út í bæ. Þetta er áhugamál sem fer vel með fullri vinnu.
Í febrúar 2022 ræsti ég Yrju formlega og opnaði vefverslun með prjónauppskriftir. Hægt og rólega hafa nýjar uppskriftir bæst við og ég nota það svigrúm sem gefst til að skrifa uppskriftir og prjóna.
GDPR
Gagnaleiðrétting
Þú getur notað hlekkinn hér að neðan til að uppfæra reikningsgögnin þín ef þau eru ekki rétt.
Gagnaflutningur
Þú getur notað tenglana hér að neðan til að hlaða niður öllum gögnum sem við geymum og notum til að fá betri upplifun í versluninni okkar.
Aðgangur að persónuupplýsingum
Þú getur notað hlekkinn hér að neðan til að biðja um skýrslu sem mun innihalda allar persónuupplýsingar sem við geymum um þig.
Rétturinn til að gleymast
Notaðu þennan valmöguleika ef þú vilt fjarlægja persónuleg og önnur gögn úr verslun okkar. Hafðu í huga að þetta ferli mun eyða reikningnum þínum, þannig að þú munt ekki lengur hafa aðgang að honum eða getað notað hann .