{"product_id":"askur-herrapeysa","title":"ASKUR HERRAPEYSA","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePeysan Askur er með áferðarmynstri á bol og\u0026nbsp; skemmtilegum smáatriðum í hönnun. Sniðið er klassískt með hálsmáli sem er lægra að framan en aftan, svo peysan fer vel um háls og herðar. Peysan er frekar þykk og hlý og því góð í útivistina.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónað er frá hálsmáli og niður. Í fyrstu er prjónað fram og til baka til að móta hálsmálið en síðan tengt í hring. Laskalykkjur skilja að ermar og bak- og framstykki, og er aukið út frá þeim niður berustykkið. Skipt er í bol og ermar sem hvort tveggja eru prjónuð í hring. Í lokin eru teknar upp lykkjur í hálsmáli til að prjóna stroff. Auðvelt er að aðlaga sídd og ermalengd að þörfum notandans.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e1 – 2 – 3 – 4 – 5 – 6 \/ Bolvídd peysu 93 – 104 – 113 – 120 – 127 – 136 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e16 lykkjur og 20 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eLangir og stuttir hringprjónar nr. 5 og 6, sokkaprjónar nr. 5 – eða sú prjónastærð sem gefur rétta prjónfestu. Ef töfralykkja er notuð þarf ekki sokka- og ermaprjóna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003eGarn að eigin vali sem gefur rétta prjónfestu. Peysan á myndinni er prjónuð úr Vams frá Rauma (50 gr = 83 m) í lit 003. Garnþörf u.þ.b. 850 – 950 – 1050 – 1150 – 1250 – 1350 m (til viðmiðunar).\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e3 af 5. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Útaukning og úrtaka til hægri og vinstri, áferðarmynstur prjónað fram og til baka og í hring, lykkjur prjónaðar upp í hálsmáli, ítölsk affelling (ef vill). Mynsturteikning sem sýnir útaukningar, helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni.\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42616749981875,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/Askur-5sq-minni_93062f6d-94f4-40e3-a19c-97dc9f0b0cdd.jpg?v=1690747351","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is-is\/products\/askur-herrapeysa","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}