{"product_id":"duggari-ungbarnapeysa","title":"DUGGARI UNGBARNAPEYSA","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eDuggarapeysan vinsæla er hér útfærð fyrir minnstu krílin. Sama mynstur er á berustykki en kraginn er lægri en á fullorðins- og barnapeysunum. Til þess að auðveldara sé að klæða þau minnstu í peysuna er klauf prjónuð í einn laskann, sem er svo lokað með tölum. \u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónað er frá hálsmáli, fram og til baka í byrjun. Byrjað er á stroffi, berustykkið svo prjónað með laskaútaukningum. Þegar klaufin er orðin nógu löng er tengt í hring og prjónað áfram að handvegi. Þegar kemur að handvegi er skipt í bol og ermar sem áfram eru prjónuð í hring. \u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan\u003e 0-\u003c\/span\u003e3-6-9-12-24 mánaða\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\/ Bolvídd peysu 44-46-52-57-61-66 sm. (Fatastærð u.þ.b. 56-62-68-74-80-92)\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e24\u003c\/span\u003e lykkjur og 32 umferðir í sléttu prjóni = 10*10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e Fyrir bol og ermar: Stuttir hringprjónar og sokkaprjónar nr. 3½ eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu. Fyrir stroff: Sokkaprjónar og hringprjónar nr. 3. Einn langur hringprjónn í hvorri stærð er nóg ef töfralykkja er notuð.  \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eGarn að eigin vali sem hæfir prjónfestunni.\u003cspan\u003e Ljósa peysan á myndinni er prjónuð úr Isager Eco Baby \u003c\/span\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e(50 gr = 150 m) í lit E0. Sé annað garn valið þarf að huga að garnþörf. Mælt er með náttúrulegu garni, gjarnan lífrænu, sem er ekki of loðið. \u003c\/span\u003eÞað þarf u.þ.b. 100-100-150-150-150-200 g í peysuna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/span\u003e3 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap s.s. að fitja upp, prjóna slétt og brugðið, auka út til hægri og vinstri, fækka lykkjum með því að prjóna 2 saman til hægri og vinstri, og fella af. Einnig eru gerð hnappagöt. Helstu skýringar á prjónatækni eru í uppskriftinni ásamt vísun á leiðbeiningamyndbönd. \u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43545631424691,"sku":"","price":990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/750.jpg?v=1714829590","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is-is\/products\/duggari-ungbarnapeysa","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}