{"product_id":"embla-sweater-knitting-pattern","title":"EMBLA PEYSA","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eEmbla er létt og mjúk, með fínlegu mynsturprjóni á berustykki og snúnum lykkjum í stroffi. Hálsmálið er rúmt og handvegurinn frekar síður. Tvær útfærslur eru gefnar í uppskriftinni. Annars vegar mittispeysa með kvartermum, sem til dæmis er fín yfir kjóla eða háar buxur. Hins vegar síðari peysa með ermum í venjulegri lengd.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónað er frá hálsmáli og niður, svo auðvelt er að aðlaga sídd og ermalengd. Berustykkið er prjónað eftir mynsturteikningu og gerð hækkun á baki. Svo er skipt í bol og ermar og prjónað slétt í hring.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e1\u0026nbsp;–\u0026nbsp;2 –\u0026nbsp;3 –\u0026nbsp;4 –\u0026nbsp;5 –\u0026nbsp;6 –\u0026nbsp;7 \/ Bolvídd peysu 91 – 100 – 109 – 116 – 124 – 133 – 140 sm. Mælt er með að velja stærð með a.m.k. 7 sm í hreyfivídd. Ljósa peysan á myndunum er prjónuð með 7 sm hreyfivídd en sú bláa er \"oversized\" með um 23 sm hreyfivídd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e18 lykkjur í sléttu prjóni = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eLangir og stuttir hringprjónar\/sokkaprjónar nr 3,5 og 4,5 eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu. Ef töfralykkja er notuð þarf ekki sokka- og ermaprjóna. Grófari prjónn til að fitja upp með.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u0026nbsp;\u003c\/strong\u003eMidnatssol frá CaMaRose (25 gr = 200 m) prjónað með tveim þráðum. Silki\/mohair blanda eða annað garn með svipaða eiginleika kemur einnig til greina.\u0026nbsp;Það þarf um\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;125-150-150-175-175-200-200g í styttri peysuna og um\u0026nbsp;200-225-225-250-250-275-275g í þá síðari.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;2-\u003c\/span\u003e3 af 5. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Mynsturprjón. Útaukning og úrtaka til hægri og vinstri, þrjár lykkjur prjónaðar saman (tvær aðferðir) og þrjár lykkjur prjónaðar úr einni. Stuttar umferðir. Mynsturteikning sem sýnir útaukningar, helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni.\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Mælt er með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Íslenska","offer_id":42999958798515,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"English","offer_id":42999958831283,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/Embla_Sweater_5.jpg?v=1779870914","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is-is\/products\/embla-peysa","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}