{"product_id":"freyr-childrens-sweater-knitting-pattern","title":"FREYR BARNAPEYSA","description":"\u003cp\u003eÞessi uppskrift er barnaútgáfan af Frey – lopapeysunni. Mynstrið er frekar óhefðbundið fyrir lopapeysu enda nær það yfir alla peysuna, auk þess sem hún er með laskaúrtökum en ekki hring berustykki eins og íslenska lopapeysan er. Það er gaman að prjóna þessa peysu, enda alltaf eitthvað að gerast, og margar litasamsetningar koma til greina. Símynstrið gerir peysuna extra hlýja.\u0026nbsp;\u003cbr\u003ePrjónað er neðan frá og upp. Bolur og ermar eru prjónuð í hring, sameinuð á einn prjón við handveg og tekið úr berustykkinu með laskaúrtökum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærðir:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e2-4-6-8-10-12-14 ára \/ Hæð barns 92-104-116-128-140-152-164 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónfesta:\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e18 lykkjur og 24 umferðir = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónar:\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003eHringprjónar og sokkaprjónar nr. 3½ og 4½ eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu; lengd hringprjóna fer eftir stærð peysu. Einn langur hringprjónn í hvorri stærð er nóg ef töfralykkja er notuð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGarn:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eÁlafoss léttlopi eða garn með sömu prjónfestu. Það þarf u.þ.b.\u0026nbsp;\u003cspan\u003e 150-150-150-200-200-200-250 g af aðallit og 50-50-50-100-100-100-100 g + 50-50-50-100-100-150-150 g af mynsturlitunum.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eErfiðleikastig:\u0026nbsp;\u003c\/strong\u003e3-4 af 5. Eftirfarandi tækni er notuð í uppskriftinni: Fitja upp, prjóna slétt og brugðið, fella af.\u0026nbsp; Auka út til hægri og vinstri, úrtökur þar sem þrjár lykkjur eru prjónaðar saman. Prjónað er eftir litamynstri (mynsturmynd). Útskýringar eru í uppskriftinni sjálfri auk\u0026nbsp; ýmissa leiðbeininga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður.\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003cem\u003eMælt er með að nota tölvu frekar en síma.\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/em\u003e\u003cem\u003eStundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44870572146867,"sku":null,"price":1090.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/Freyr_junior2.jpg?v=1785321687","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is-is\/products\/freyr-barnapeysa-uppskrift","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}