{"product_id":"loki-lopapeysa-junior-knitting-pattern","title":"LOKI BARNAPEYSA","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eLoki er klassísk lopapeysa sem hentar öllum kynjum og aldurshópum, hér í barnastærðum allt frá 9 mánaða til 12 ára.\u0026nbsp;\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónað er neðan frá og upp. Bolur og ermar eru prjónuð í hring og svo sameinuð á einn prjón við handveg. Eftir sameiningu eru prjónaðar stuttar umferðir yfir bakhluta berustykkisins til að hækka peysuna að aftan (hægt að sleppa). Svo er mynstrið prjónað eftir mynsturteikningu og lykkjum fækkað með reglulegu millibili. Að lokum er kraginn prjónaður og lykkjaður eða saumaður niður í innanvert hálsmálið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e 9 mánaða-1-2-4-6-8-10-12\u003c\/span\u003e\u0026nbsp;ára \/ Bolvídd peysu \u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e58-61-64-68-73-79-84-90\u003c\/span\u003e\u0026nbsp;sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e18 lykkjur í sléttu prjóni = 10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u0026nbsp;Fyrir bol og ermar: Hringprjónar nr. 4 ½\u0026nbsp;\u0026nbsp;eða það sem gefur rétta prjónafestu; lengd fer eftir stærð peysu. Fyrir stroff: Sokkaprjónar nr. 3½ og hringprjónar 40 sm fyrir hálsmál\u0026nbsp;og lengri fyrir stroff á bol. Einn langur hringprjónn í hvorri stærð er nóg ef töfralykkja er notuð.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e Léttlopi (50 g = um 100 m) eða garn af sambærilegum grófleika. Peysan á\u0026nbsp;myndinni\u0026nbsp;er prjónuð úr litum \u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eA\u003c\/strong\u003e 0053 Mórauður, \u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eB\u003c\/strong\u003e 9423 Blágrænn og \u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eC\u003c\/strong\u003e 00860 Ljósljósmórauður. \u003c\/span\u003eÞað þarf u.þ.b. 150-150-200-250-250-250-300-350\u0026nbsp;g af\u0026nbsp;léttlopa\u0026nbsp;í aðallit, og\u0026nbsp;50 g af\u0026nbsp;af mynsturlitunum í peysuna, nema í stærð 12 ára þarf 100 g í lit B.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;2-\u003c\/span\u003e3 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap s.s. að fitja upp, prjóna slétt og brugðið, auka út til hægri og vinstri, fækka lykkjum með því að prjóna 2 saman, og fella af. Auk þess er prjónað er eftir litamynstri, tví- og þríbandaprjón og gerðar stuttar umferðir ef vill. Mynsturmyndir, helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni.\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja Knit","offers":[{"title":"Íslenska","offer_id":43111427244211,"sku":null,"price":1090.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"English","offer_id":43111427276979,"sku":null,"price":1090.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/Loki_junior_lopapeysa_1.jpg?v=1779810172","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is-is\/products\/loki-lopapeysa-barna","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}