{"product_id":"mist-peysa","title":"MIST PEYSA","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eMist peysa er létt og mjúk í smá retró stíl, geggjuð með gallabuxum eða yfir kjóla, hversdags og spari. Prjónað er neðan frá og upp, bæði bolur og ermar eru prjónuð í hring og svo sameinuð á langan hringprjón við berustykki. Tekið er úr á berustykki með löskum og rúllukraginn prjónaður í beinu framhaldi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e1 – 2 – 3 – 4 – 5 – 6 – 7 – 8 \/ Bolvídd peysu 93 – 98 – 103 – 108 – 113 – 118 – 123 – 128 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e16 lykkjur og 24 umferðir í gataprjóni = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eLangir og stuttir hringprjónar nr. 4 eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu. Heilu nr. fínni sokkaprjónar og stuttir og langir hringprjónar fyrir stroff. Ef töfralykkja er notuð þarf ekki sokka- og ermaprjóna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003eGarn að eigin vali sem hæfir prjónfestunni (hægt er að nota sport eða DK grófleika \/ smáband eða léttband) eða tveir þræðir af garni sem saman prjónast á 21-24 L pr. 10 sm í sléttu prjóni. Til dæmis einn þráður af silki mohair með einum þræði af Concept silky lace frá Katia, Leonora frá Permin eða Alpaca 1 frá Isager – eða sambærilegu garni. Því fíngerðara garn sem er valið, því léttari og gagnsærri verður peysan.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞað þarf u.þ.b. 850 – 900 – 950 – 1000 – 1050 -1100 – 1150 -1200 m. (af hvorum þræði ef prjónað er með tveim þráðum) miðað við rétta prjónfestu og grófleika af garni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e3-4 af 5. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Uppfit og affelling. Gataprjón. Útaukning og úrtaka til hægri og vinstri. Mynstrið er í sjálfu sér einfalt en helsta áskorunin í uppskriftinni er að halda því réttu í útaukningum og úrtökum. Mynsturteikning, helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni.\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Eindregið er mælt með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja Knit","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42616704925875,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/1_61f8c859-3de5-4588-b901-267bb306eeae.jpg?v=1690754966","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is-is\/products\/mist-peysa","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}