{"product_id":"retropeysa-barna","title":"RETROPEYSA BARNA","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eRetropeysan er símynstruð með gömlu en sígildu litamynstri. Mynstrið gefur færi á ótal litamöguleikum svo hægt er að skapa flík eftir smekk hvers og eins. Hvort sem valdir eru mildir litir með litlum andstæðum eða skærir með miklum andstæðum getur útkoman orðið falleg og einstök. Val um venjulegt stroff eða perluprjón bætir einnig við möguleikum á útfærslu peysunnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónað er í hring ofan frá og byrjað á stroffinu. Eftir stroff í hálsmáli er stykkinu skipt í ermar, bak- og framstykki með prjónamerkjum. Laskalykkjur skilja stykkin að og er aukið út fyrir framan og aftan þær, niður berustykkið. Þegar kemur að skiptingu í bol og ermar eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í holhönd fyrir hliðarnar á bolnum og áfram prjónað í hring. Ermalykkjur undir hendi eru prjónaðar upp úr holhandarlykkjunum og ermar prjónaðar í hring. Frágangur verður því með minnsta móti.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eAuðvelt er að aðlaga sídd og ermalengd að þörfum notandans.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u0026nbsp;\u003c\/strong\u003e2 – 4 – 6 – 8 – 10 – 12 ára.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e21 lykkja og 24 umferðir í litamynstri = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eHringprjónar og sokkaprjónar nr. 3 og 4 eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu, lengd fer eftir stærð peysu. Ef töfralykkja er notuð þarf ekki sokkaprjóna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003eMælt er með að nota bómullar- og ullarblöndu til þess að peysan verði ekki of þykk og heit. Peysurnar á myndunum eru prjónaðar úr Sandnes Duo (50 g = 115 m) en nota má annað sambærilegt garn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞað þarf u.þ.b.: 100 – 150 – 150 – 150 – 200 – 200 g af aðallit og u.þ.b. 100 – 100 – 150 – 150 – 150 – 150 g af mynsturlit.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e2 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap s.s. að fitja upp, prjóna slétt og brugðið, fella af, prjóna upp lykkjur og auka út og fækka lykkjum til hægri og vinstri. Prjónað er einfalt litamynstur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Mælt er með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Íslenska","offer_id":42969976766643,"sku":"Yk\/EA-1313233","price":1090.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"English","offer_id":42969976799411,"sku":"Yk\/EA-1313233","price":1090.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/20221004_172811s_4667c04a-6689-43c3-8282-5581cd08d65b.jpg?v=1690754860","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is-is\/products\/retropeysa-barna","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}