{"product_id":"sand-jakkapeysa","title":"SAND JAKKAPEYSA","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eSand jakkapeysan er prjónuð með einföldu áferðarmynstri og laskaermum. Hún er fljótprjónuð á grófa prjóna, klassísk í sniði og passar við allt. Þegar prjónað er með yrjóttu garni myndast skemmtilegt samspil áferðar og lita sem erfitt er að fanga á mynd en gerir peysuna einstaka.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónað er fram og til baka frá hálsmáli og niður en ermar eru prjónaðar í hring. Laskalykkjur skilja að ermar og bak- og framstykki, og er aukið út frá þeim niður berustykkið. Í lokin eru teknar upp lykkjur fyrir boðunga. Auðvelt er að aðlaga sídd og ermalengd að þörfum notandans.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e1 – 2 – 3 – 4 – 5 – 6 \/ Bolvídd peysu 97 – 102 – 108 – 114 – 123 – 133 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e13 lykkjur og 20 umferðir í mynsturprjóni = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e40 og 100 sm langir hringprjónar nr 5 og 7, sokkaprjónar nr 5 – eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu. Ef töfralykkja er notuð þarf ekki sokka- og ermaprjóna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003ePuF frá Gepard (50 g = 90 m) prjónað með Kid Seta frá Gepard (25 g = 210 m). Áætlað garnmagn PuF: 400-450-500-500-550-600 g og Kid Seta: 100-100-100-125-125-150 g.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e2 af 5, uppskriftin hentar bæði vönum og minna vönum prjónurum vel. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Uppfit og affelling. Útaukning og úrtaka til hægri og vinstri, einfalt áferðarmynstur, fitjað upp fyrir lykkjum í handvegi, lykkjur teknar upp, hnappagöt. Mynsturteikning sem sýnir útaukningar, helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Mælt er með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við\u0026nbsp;fjögur skipti.\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Íslenska","offer_id":42969941082291,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"English","offer_id":42969941115059,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/Sand-cardi-back-c.jpg?v=1690755178","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is-is\/products\/sand-jakkapeysa","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}