{"product_id":"stilla-wristwarmers-knitting-pattern","title":"STILLA HANDSTÚKUR","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eStundum er einfalt bara best. Stilla handstúkurnar eru lausar við allt prjál en stílhreinar og klassískar í einfaldleika sínum. Góðar úti vor og haust en líka inni þegar vetur er kaldur. Þær eru fljótprjónaðar og tilvalin uppskrift fyrir byrjendur sem lengra komna prjónara.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u0026nbsp;\u003c\/strong\u003e1 (S-M) og 2 (L-XL).\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e21 lykkja í sléttu prjóni = 10 sm á breidd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eSokkaprjónar nr. 4 eða sú stærð sem þarf til að ná réttri prjónfestu. Ef töfralykkja er notuð þarf langan hringprjón nr. 4.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003eGarn sem hæfir prjónafestunni. Stúkurnar á myndunum eru prjónaðir úr Puna frá Drops (50 gr = 110 m) í lit 04, grábrúnn. Það þarf um 50-100 g af garni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e2 af 5. Það er engin flókin tækni í þessari uppskrift; hefðbundin uppfit og affelling, einfalt stroff, slétt prjón og útaukningar til hægri og vinstri. Skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru aftast í uppskriftinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Eindregið er mælt með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við 4 skipti.\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Íslenska","offer_id":44375789076659,"sku":"","price":590.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"English","offer_id":44375789043891,"sku":"","price":590.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/Stilla_Wrist_Warmers_1.jpg?v=1779714249","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is-is\/products\/stilla-handstukur","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}