{"product_id":"vinda-peysa","title":"VINDA PEYSA","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePeysan Vinda er með áberandi kaðlamynstri sem vindur sig frá háum kraganum og niður berustykkið. Mynstrið endurtekur sig í stroffi á ermum og bol. Prjónað er ofan frá og niður sem gerir það auðvelt að aðlaga sídd og ermalengd auk þess sem frágangur verður í minnsta lagi. Hækkun á baki gerir það að verkum að peysan situr fallega og fer vel í hálsmálinu framanverðu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e1 – 2 – 3 – 4 – 5 – 6 – 7 \/ Bolvídd peysu 88 – 95 – 102 – 109 – 116 – 123 – 130 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e18 lykkjur og 23 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eLangir og stuttir hringprjónar nr. 5 eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu. Hálfu og heilu nr. fínni prjónar fyrir stroff. Ef töfralykkja er notuð þarf ekki sokka- og ermaprjóna. Kaðlaprjónn eða annar hjálparprjónn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003eGarn að eigin vali sem hæfir prjónafestunni (Worsted grófleiki) eða tveir þræðir af garni sem saman prjónast á 18 L pr 10 sm, til dæmis einn þráður af ullargarni með prjónfestu 20-22 ásamt einum þræði af silki-mohair eða einn þráður af plötulopa með einum þræði af einbandi. Peysan á myndunum er prjónuð úr Lama Tweed frá CaMaRose (50 gr = 100 m, lamaull, ull og Donegal) í lit 6453 Pudder.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞað þarf u.þ.b. 400 – 450 – 500 – 550 – 600 – 600 – 650 g eða u.þ.b. 800 – 900 – 1000 – 1100 – 1200 – 1200 – 1300 m. miðað við uppgefið garn og rétta prjónafestu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e3 af 5. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Kaðlaprjón. Útaukning og úrtaka til hægri og vinstri. Stuttar umferðir. Mynsturteikningar sem sýna útaukningar, helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni.\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Eindregið er mælt með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Íslenska","offer_id":42969979060403,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"English","offer_id":42969979093171,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/N4s_78babc74-4002-4149-b370-8e9cfcee2665.jpg?v=1705505164","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is-is\/products\/vinda-peysa","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}