{"product_id":"yrja-jakkapeysa","title":"YRJA JAKKAPEYSA","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eÞessi mjúka og hlýja peysa er prjónuð úr grófu garni á stóra prjóna í áferðarmynstri. Mynstrið er einfalt og auðlært en setur mikinn svip á peysuna. Garnið í peysuna er úr náttúrulegum efnum; Alpaca, bómull og merinoull.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónað er neðan frá og upp, fram og til baka. Boðungarnir eru prjónaðir um leið og bolurinn. Ermarnar eru prjónaðar við bolinn með laskaúrtökum. Frágangur er því sáralítill, aðeins þarf að lykkja ermar við bol í holhönd og lykkja boðungana saman í hnakkanum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u0026nbsp;\u003c\/strong\u003eUppskriftin er í 6 stærðum; bolvídd peysu: 98-104-111-118-124-131 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e12 lykkjur og 14 umferðir í mynsturprjóni = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eHringprjónar og sokkaprjónar nr. 6 og 9 eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eDrops Wish (50 gr = 70 m). Hér sýnt í litnum Sægrænn (nr 14). Garnmagn í peysu er u.þ.b. 550-600-650-650-700-750-800 gr. Nota má annað garn af sama grófleika eða prjóna með tveimur þráðum sem saman gefa rétta prjónfestu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e3 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap. Auk þess er notast við ítalskt uppfit, úrtökur og útaukningar til hægri og vinstri. Í löskum er tekið úr með því að prjóna 3 lykkjur saman. Helsta tækni er útskýrð í uppskriftinni og með hlekkjum á skýringarmyndbönd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Eindregið er mælt með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við 4 skipti.\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42616749621427,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/314987543_1491772197992633_7568716017220824066_nss.jpg?v=1690755650","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is-is\/products\/yrja-jakkapeysa","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}