{"product_id":"askur-domupeysa","title":"ASKUR DÖMUPEYSA","description":"\u003cp\u003eVinsæla Askur peysan er nú komin í dömuútgáfu. Peysan er með áferðarmynstri á bol og skemmtilegum smáatriðum í hönnun. Breiður laski teygir sig frá hálsmáli niður berustykkið, í hliðarnar á bolnum og undir ermum, niður að stroffi sem er með klauf í hliðum. Sniðið er frekar vítt með hálsmáli sem er lægra að framan en aftan, svo peysan fer vel um háls og herðar.\u0026nbsp;\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePrjónað er frá hálsmáli og niður. Í fyrstu er prjónað fram og til baka til að móta hálsmálið en síðan tengt í hring. Laskalykkjur skilja að ermar og bak- og framstykki, og er aukið út frá þeim niður berustykkið. Skipt er í bol og ermar sem hvort tveggja eru prjónuð í hring. Í lokin eru teknar upp lykkjur í hálsmáli til að prjóna stroff. Auðvelt er að aðlaga sídd og ermalengd að þörfum notandans.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærðir:\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e1 – 2 – 3 – 4 – 5 – 6 \/ Bolvídd peysu 96 – 104 – 113 – 120 – 127 – 136 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e16 lykkjur og 20 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eLangir og stuttir hringprjónar nr. 5 og 6, sokkaprjónar nr. 5 – eða sú prjónastærð sem gefur rétta prjónfestu. Ef töfralykkja er notuð þarf ekki sokka- og ermaprjóna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGarn:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003eUllar\/alpacagarn sem gefur rétta prjónfestu. Peysan á myndinni er prjónuð í Eco+ frá Cascade ( 250 g =\u0026nbsp; 437 m) í lit 3103 Legion Blue. Garnþörf u.þ.b. 800 – 900 – 1000 – 1100 – 1200 – 1300 m (til viðmiðunar). Peysan hefur komið vel út í Vams frá Rauma og svo er líka hægt að nota tvær garntegundir saman til að fá skemmtilega hreyfingu í prjónið, til dæmis Drops Karisma og Flora saman.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e3-4 af 5. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Útaukning og úrtaka til hægri og vinstri, áferðarmynstur prjónað fram og til baka og í hring samtímis því að gerðar eru laskaútaukningar og hálsmál mótað. Lykkjur prjónaðar upp í hálsmáli, ítölsk affelling (ef vill). Mynsturteikningar sem sýna útaukningar og hálsmál, helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni.\u003cem\u003e\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44884424687795,"sku":null,"price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/AskurD_1.jpg?v=1779743372","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is\/products\/askur-domupeysa","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}