{"product_id":"duggari-icelandic-sailor-sweater-pattern","title":"DUGGARI HERRAPEYSA","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePeysan er með áferðarmynstri á berustykki en er einföld að öðru leyti. Hún minnir á sjómannapeysur fyrri tíma og fékk því nafnið Duggari. Klassísk í sniði og kemur vel út í margs konar garni, hlý en ekki of þykk og passar við allt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónað er frá hálsmáli og niður. Í fyrstu er prjónað mynsturprjón fram og til baka til að móta hálsmál en síðan tengt í hring. Laskalykkjur skilja að ermar og bak- og framstykki, og er aukið út frá þeim niður berustykkið. Eftir að berustykki er lokið er peysan prjónuð með sléttu prjóni. Í lokin eru teknar upp lykkjur í hálsmáli til að prjóna stroff. Auðvelt er að aðlaga sídd og ermalengd að þörfum notandans.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eStærðir:\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e1 – 2 – 3 – 4 – 5 – 6 – 7 \/ Bolvídd peysu 99 – 106 – 110 – 114 – 119 – 126 – 130 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e18 lykkjur og 24 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eLangir og stuttir hringprjónar nr 4 og 5, sokkaprjónar nr. 4 – eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu. Ef töfralykkja er notuð þarf ekki sokka- og ermaprjóna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eGarn:\u0026nbsp;\u003c\/strong\u003eMargar garntegundir koma til greina í þessa peysu. Peysan á myndinni er prjónuð úr Cascade 220 (100 gr = 200 m). Garnþörf u.þ.b. 1000 – 1100 – 1150 – 1200 – 1250 – 1350 – 1400 m (til viðmiðunar).\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eErfiðleikastig:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e2 af 5. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Útaukning og úrtaka til hægri og vinstri, einfalt áferðarmynstur, lykkjur teknar upp í hálsmáli. Mynsturteikning sem sýnir útaukningar, helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni.\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Íslenska","offer_id":42969989021875,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"English","offer_id":42969989054643,"sku":"","price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/Duggari_mans_1.jpg?v=1779528378","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is\/products\/duggari-icelandic-sailor-sweater-pattern","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}