{"product_id":"lin-hand-towel-and-cloth-knitting-pattern","title":"LÍN ELDHÚSSETT","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónaðir borðklútar eru einfaldlega bestir. Þessi uppskrift er innblásin af gamaldags frönskum eldhúsklútum en rendurnar eru langsum en ekki þversum eins og venjan er. Gerðu þína eigin útgáfu í þeim litum sem fara vel í þínu eldhúsi – og því ekki að eiga handklæði í stíl? Settið er líka tilvalin gjöf.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eMynstrið sem prjónað er kallast „linen stitch“ á ensku, með vísun í lín eða léreft. Það myndar slétta og snyrtilega áferð sem líkist vefnaði á réttunni. Á röngunni líkist áferðin perluprjóni. Þetta áferðarprjón er þétt og plaggið verður sterkt og endingargott.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eUppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap. Prjónað er einfalt áferðarmynstur fram og til baka. Þetta verkefni hentar vönum sem óvönum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eMál\u003c\/strong\u003e\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003eHandklæði: U.þ.b. 30×40 sm.\u003cbr data-mce-fragment=\"1\"\u003eBorðklútur: U.þ.b. 21×21 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónfesta:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e17lykkjur x 30 umferðir í áferðarmynstri = 10 x 10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003ePrjónar:\u003c\/strong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003eLangur hringprjónn 5 mm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cstrong data-mce-fragment=\"1\"\u003eTillaga að garni:\u0026nbsp;\u003c\/strong\u003eBómullargarn sem er með prjónfestuna 16-18 L. Einnig má prjóna með tveim þráðum af finna garni. Hér sýnt í\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eDrops Paris\u003c\/em\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e(50 gr=75 m) litum 17 og 59 og\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eDrops Loves You 8\u003c\/em\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u0026nbsp;\u003c\/span\u003e(50 gr=85m), litum 02 og 08.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003eFyrir handklæði og borðklút þarf 2 hnotur af aðallit og 1 hnotu af aukalit.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\"\u003e\u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Mælt er með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við\u0026nbsp;fjögur skipti.\u0026nbsp;\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Íslenska","offer_id":42969982697651,"sku":"","price":590.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"English","offer_id":42969982730419,"sku":"","price":590.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/Lin_kitchen_towel_set_1.jpg?v=1779904382","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/is\/products\/lin-hand-towel-and-cloth-knitting-pattern","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}