{"product_id":"freyr-lopapeysa-knitting-pattern","title":"Freyr lopapeysa","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eThis pattern is currently available in Icelandic only. An English edition is in preparation — join the list to hear when it's ready.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFreyr er óhefðbundin lopapeysa sem gaman er að prjóna í alls kyns litasamsetningum. Símynstrið gerir peysuna extra þykka og hlýja. Hálsmálið er lægra að framan þannig að peysan fer vel.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePrjónað er neðan frá og upp. Bolur og ermar eru prjónuð í hring, sameinuð á einn prjón við handveg og tekið úr berustykki með löskum. Hálsmál er mótað með því að prjóna stuttar umferðir fram og til baka.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærðir:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e1-2-3-4-5-6 \/ Bolvídd 93-100-107-113-120-127 sm í gefinni prjónfestu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónfesta:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e12 lykkjur og 16 umferðir í mynsturprjóni = 10×10 sm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónar:\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003eHringprjónar nr. 4½ og 7 eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu; 40, 60 og 80 sm langir. Sokkaprjónar nr. 4½ fyrir stroff. Einn langur hringprjónn í hvorri stærð er nóg ef töfralykkja er notuð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGarn:\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eÁlafoss lopi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eErfiðleikastig: \u003c\/strong\u003e3-4 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap s.s. að fitja upp, prjóna slétt og brugðið, fella af og auka út til hægri og vinstri. Prjónað er eftir litamynstri ásamt því að gerðar eru úrtökur þar sem tvær og þrjár lykkjur eru prjónaðar saman. Útskýringar eru í uppskriftinni sjálfri auk mynsturteikningar og ýmissa leiðbeininga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cem\u003eVið kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. \u003c\/em\u003e\u003cem\u003eMælt er með að nota tölvu frekar en síma.\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/em\u003e\u003cem\u003eStundum þarf að leita í Niðurhal\/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar\/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.\u003c\/em\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Yrja knit","offers":[{"title":"Icelandic","offer_id":45913381765299,"sku":null,"price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"English","offer_id":46108996174003,"sku":null,"price":1190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0591\/0491\/9731\/files\/Freyr1.jpg?v=1690748829","url":"https:\/\/yrjaknit.com\/products\/freyr-lopapeysa-knitting-pattern","provider":"Yrja knit","version":"1.0","type":"link"}