Yrja knit
DUGGARI HERRAPEYSA
DUGGARI HERRAPEYSA
Ekki tókst að hlaða upplýsingum um möguleika á að sækja
Herrapeysa með áferðarmynstri á berustykki en einföld að öðru leyti. Hún minnir á sjómannapeysur fyrri tíma og fékk því nafnið Duggari. Klassísk í sniði og kemur vel út í margs konar garni, hlý en ekki of þykk og passar við allt. Þetta er vinsælasta uppskriftin okkar hingað til.
Prjónfesta 18 lykkjur og 24 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm
Garn Þykkband / Worsted grófleiki · Erfiðleikastig 2–3 af 5
Uppskriftin inniheldur ítarlegar skýringar, mynsturmynd og vísun á leiðbeiningamyndbönd.
Prjónaferlið
Prjónuð í einu lagi frá hálsmáli og niður. Áferðarmynstur er prjónað á berustykki og ermum samhliða því að hálsmálið er rúnnað að framan (prjónað fram og til baka) og aukið út á löskum. Svo er tengt í hring og áferðarmynstur og útaukningar prjónaðar niður að handvegi. Eftir það er prjónað slétt. Stroffið í hálsmáli er prjónað í lokin. Auðvelt er að aðlaga sídd og ermalengd.
Stærðir, mál og garnmagn
| Stærð | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Bolvídd peysu (sm) | 99 | 106 | 110 | 114 | 119 | 126 | 130 |
| Sídd peysu frá öxl (sm) | 70 | 71 | 71 | 73 | 73 | 76 | 76 |
| Garnþörf (g) | 500 | 550 | 600 | 600 | 650 | 700 | 700 |
Mælt er með að taka stærð sem er 5–12 sm víðari en brjóstmál notandans (eða mælt þar sem hann er mestur um sig á bol), en það er persónubundið hversu mikla vídd fólk vill hafa. Peysan á myndunum er með um 8 sm hreyfivídd. Ef þú ert í vafa er gott að mæla bolvíddina á peysu sem passar vel og hafa hana til viðmiðunar.
Ítarleg máltafla er í uppskriftinni.
Þar sem við prjónum öll með okkar eigin lagi er ekki hægt að gefa alveg nákvæma tölu fyrir garnmagn.
Efni, áhöld og aðferðir
| Garn | Þykkband (Worsted), eða garn sem gefur rétta prjónfestu. Margar garntegundir koma til greina í þessa peysu. Peysan á myndinni er prjónuð úr Cascade 220 (100 g = 200 m). |
|---|---|
| Prjónar | Langir og stuttir hringprjónar nr. 4 og 5 og sokkaprjónar nr. 4, eða sú stærð sem þarf til að ná prjónfestu — langir hringprjónar í hvorri stærð ef töfralykkja er notuð. |
| Aukahlutir | Prjónamerki, þar á meðal umferðamerki. Nál til að ganga frá endum, málband og skæri. |
| Helstu aðferðir | Uppfit, prjónað slétt og brugðið, affelling. Útaukningar og úrtökur til hægri og vinstri. Lykkjur teknar upp í hálsmáli. Einfalt áferðarmynstur prjónað eftir mynsturmynd bæði fram og til baka og í hring, samtímis því að hálsmál er rúnnað og aukið er út á löskum. |
Sama mynstur í fleiri flíkum: Duggari barnapeysa, ungbarnapeysa og Duggarahúfa.
Share
