Yrja knit
EMBLA TOPPUR
EMBLA TOPPUR
Ekki tókst að hlaða upplýsingum um möguleika á að sækja
Emblu toppurinn er kvenlegur og penn með fínlegu útprjóni á berustykki. Ermar eru stuttar og í staðinn fyrir stroff í hálsi, á ermum og bol er prjónað mynstur. Toppurinn er fullkomið vorverkefni því hann má nota einan og sér yfir sumarið en er líka fínn undir jakka eða opna peysu allan ársins hring og má dressa upp og niður.
Hönnunin fylgir engum tískubylgjum og ef valið er að prjóna úr hör (uppgefið garn) mun hann endast í áraraðir.
Prjónfesta 21 lykkja og 31 umferð í sléttu prjóni = 10×10 sm
Garn Léttband / DK grófleiki · Erfiðleikastig 2–3 af 5
Í uppskriftinni eru mynsturmyndir, skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd.
Prjónaferlið
Prjónað er frá hálsmáli og niður, svo auðvelt er að aðlaga sídd og ermalengd. Berustykkið er prjónað eftir mynsturteikningu og gerð hækkun á baki. Svo er skipt í bol og ermar, prjónað slétt í hring og endað á mynstri í staðin fyrir stroff.
Stærðir, mál og garnmagn
| Stærð | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Bolvídd (sm) | 78 | 86 | 93 | 99 | 107 | 114 | 120 | 128 |
| Sídd frá miðju að framan (sm) | 51 | 52 | 52 | 53 | 53 | 53 | 54 | 55 |
| Garnþörf (g) | 200–250 | 250 | 250 | 250–300 | 300 | 300–350 | 350 | 350 |
Þegar stærð er valin er best að miða við brjóstmál eða mælingu þar sem notandinn er mestur um sig á búk. Sniðið á toppnum gerir ráð fyrir 3–7 sm hreyfivídd þannig að ef brjóstmál er t.d. 95 sm ætti að velja stærð 4. Ef þú ert í vafa um stærð er gott að mæla þunna peysu eða topp sem passar vel á notandann og velja út frá því.
Ítarleg máltafla er í uppskriftinni.
Þar sem við prjónum öll með okkar eigin lagi er ekki hægt að gefa alveg nákvæma tölu fyrir garnmagn.
Efni, áhöld og aðferðir
| Garn | Lövetand frá CaMaRose (50 g = 140 m), 100% lífrænn hör. Toppurinn á myndunum er prjónaður í lit 430, Sölv grå. Nota má annað garn með sömu prjónfestu en val á garni hefur áhrif á útlit og eiginleika toppsins, t.d. áferð (glans) og þyngd, þ.e. hvernig toppurinn fellur. Við mælum með að velja náttúrulegt garn. |
|---|---|
| Prjónar | Langir og stuttir hringprjónar nr. 3,5 og 4, eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu. Ef töfralykkja er notuð þarf ekki sokka- og ermaprjóna. Grófari prjónn til að fitja upp með, t.d. nr. 6–7. |
| Aukahlutir | Prjónamerki. Nál til að ganga frá endum, málband og skæri. |
| Helstu aðferðir | Uppfit, prjónað slétt og brugðið, affelling. Mynsturprjón. Útaukning og úrtaka til hægri og vinstri, þrjár lykkjur prjónaðar saman og þrjár lykkjur prjónaðar úr einni. Stuttar umferðir. |
Emblu uppskriftin er líka til í hlýrri og mýkri útgáfu: Embla peysa.
Share
