Fara í upplýsingar um vöru
1 af 2

Yrja knit

FREYR BARNAPEYSA

FREYR BARNAPEYSA

Almennt verð 1.090 kr.
Almennt verð Söluverð 1.090 kr.
Afsláttur Uppselt
Sending reiknast síðar í kaupferlinu.
Magn

Þessi uppskrift er barnaútgáfan af Frey – lopapeysunni. Mynstrið er frekar óhefðbundið fyrir lopapeysu enda nær það yfir alla peysuna, auk þess sem hún er með laskaúrtökum en ekki hring berustykki eins og íslenska lopapeysan er. Það er gaman að prjóna þessa peysu, enda alltaf eitthvað að gerast, og margar litasamsetningar koma til greina. Símynstrið gerir peysuna extra hlýja. 
Prjónað er neðan frá og upp. Bolur og ermar eru prjónuð í hring, sameinuð á einn prjón við handveg og tekið úr berustykkinu með laskaúrtökum.

Stærðir: 2-4-6-8-10-12-14 ára / Hæð barns 92-104-116-128-140-152-164 sm.

Prjónfesta: 18 lykkjur og 24 umferðir = 10×10 sm.

Prjónar: Hringprjónar og sokkaprjónar nr. 3½ og 4½ eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu; lengd hringprjóna fer eftir stærð peysu. Einn langur hringprjónn í hvorri stærð er nóg ef töfralykkja er notuð.

Garn: Álafoss léttlopi eða garn með sömu prjónfestu. Það þarf u.þ.b.  150-150-150-200-200-200-250 g af aðallit og 50-50-50-100-100-100-100 g + 50-50-50-100-100-150-150 g af mynsturlitunum.

Erfiðleikastig: 3-4 af 5. Eftirfarandi tækni er notuð í uppskriftinni: Fitja upp, prjóna slétt og brugðið, fella af.  Auka út til hægri og vinstri, úrtökur þar sem þrjár lykkjur eru prjónaðar saman. Prjónað er eftir litamynstri (mynsturmynd). Útskýringar eru í uppskriftinni sjálfri auk  ýmissa leiðbeininga.

Við kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Mælt er með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.

Skoða allar upplýsingar