Yrja Knit
LOKI BARNAPEYSA
LOKI BARNAPEYSA
Ekki tókst að hlaða upplýsingum um möguleika á að sækja
Loki er klassísk lopapeysa sem hentar öllum kynjum og aldurshópum, hér í barnastærðum allt frá 9 mánaða til 12 ára.
Prjónfesta 18 lykkjur í sléttu prjóni = 10×10 sm
Garn Léttlopi · Erfiðleikastig 2–3 af 5
Mynsturmyndir, helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni.
Prjónaferlið
Prjónað er neðan frá og upp. Bolur og ermar eru prjónuð í hring og svo sameinuð á einn prjón við handveg. Eftir sameiningu eru prjónaðar stuttar umferðir yfir bakhluta berustykkisins til að hækka peysuna að aftan (hægt að sleppa). Svo er mynstrið prjónað eftir mynsturteikningu og lykkjum fækkað með reglulegu millibili. Að lokum er kraginn prjónaður.
Stærðir, mál og garnmagn
| Stærð | 9 mán | 1 árs | 2 ára | 4 ára | 6 ára | 8 ára | 10 ára | 12 ára |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Bolvídd peysu (sm) | 58 | 61 | 64 | 68 | 73 | 79 | 84 | 90 |
| Sídd frá handvegi (sm) | 20 | 22 | 24 | 26 | 28 | 31 | 34 | 37 |
| Garnþörf, aðallitur (g) | 150 | 150 | 200 | 250 | 250 | 250 | 300 | 350 |
Það þarf 50 g af mynsturlitunum í peysuna, nema í stærð 12 ára þarf 100 g í lit B (blágræni/bleiki á myndunum).
Þar sem við prjónum öll með okkar eigin lagi er ekki hægt að gefa alveg nákvæma tölu fyrir garnmagn.
Þegar stærð er valin er best að miða við brjóstmál eða mælingu þar sem barnið er mest um sig á búk og bæta við þeirri hreyfivídd sem óskað er. Ef þú ert í vafa um stærð er gott að mæla þykka peysu sem passar vel á barnið og velja út frá því. Ítarlegri máltafla er í uppskriftinni.
Efni, áhöld og aðferðir
| Garn | Léttlopi (50 g = um 100 m) eða garn af sambærilegum grófleika. Brúna peysan á myndinni er prjónuð úr litum A 0053 Mórauður, B 9423 Blágrænn og C 0086 Ljósljósmórauður. |
|---|---|
| Prjónar | Fyrir bol og ermar: Hringprjónar nr. 4½ eða það sem gefur rétta prjónafestu; lengd fer eftir stærð peysu. Fyrir stroff: Sokkaprjónar nr. 3½ og hringprjónar 40 sm fyrir hálsmál og lengri fyrir stroff á bol. Einn langur hringprjónn í hvorri stærð er nóg ef töfralykkja er notuð. |
| Aukahlutir | Prjónamerki. Nál til að ganga frá endum, málband og skæri. |
| Helstu aðferðir | Uppfit, prjónað slétt og brugðið, útaukning til hægri og vinstri, úrtaka þar sem tvær lykkjur eru prjónaðar saman, og affelling. Auk þess er prjónað eftir litamynstri, tví- og þríbandaprjón, og gerðar stuttar umferðir ef vill. |
Sama peysa í fullorðinsstærðum: Loki lopapeysa.
Share
