Skip to product information
1 of 1

Yrja knit

Darri ungbarnapeysa

Darri ungbarnapeysa

Regular price 900 kr.
Regular price Sale price 900 kr.
Sale Sold out

Darri er þykk peysa fyrir þau minnstu. Peysan er fljótprjónuð með rúmu og góðu sniði. Hálsmálið er mótað lægra að framan svo peysan bungi ekki út á bringunni. Rendurnar setja krúttlegan svip á peysuna og gefa færi á alls kyns litaspili, bæði fyrir stráka og stelpur. 

Prjónað er frá hálsmáli. Byrjað er á stroffi, svo  gerðar stuttar umferðir (má sleppa) ásamt því að aukið er út við laska. Eftir stuttu umferðirnar er berustykkið prjónað í hring. Þegar kemur að handvegi er skipt í bol og ermar sem áfram eru prjónuð í hring. 

Stærðir: 3-6-9-12-24-48 mánaða / Bolvídd peysu 52-57-59-63-66-70 sm. (Fatastærð u.þ.b. 62-68-74-80-92-104).

Prjónfesta: 18 lykkjur og 24 umferðir í sléttu prjóni = 10*10 sm.

Prjónar:  Fyrir bol og ermar: Stuttir hringprjónar og sokkaprjónar nr. 5 eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu. Fyrir stroff: Sokkaprjónar og hringprjónar nr. 3½. Einn langur hringprjónn í hvorri stærð er nóg ef töfralykkja er notuð.  

Garn: Garn að eigin vali sem hæfir prjónfestunni. Peysan á myndinni er prjónuð úr Lana Gatto Maxi Soft (50 gr = 90 m) í litum 13777 - dökk beige, 978 - off white og 20206 - dökkgrár. Sé annað garn valið þarf að huga að garnþörf. Mælt er með náttúrulegu garni sem er ekki of loðið. Það þarf u.þ.b. 100-100-150-150-150-200 g af aðallit í peysuna, um 50-50-100-100-100-100 g af ljósari litnum og 50 g í allar stærðir af dekksta litnum.

Erfiðleikastig: 2-3 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap s.s. að fitja upp, prjóna slétt og brugðið, auka út til hægri og vinstri, fækka lykkjum með því að prjóna 2 saman til hægri og vinstri, og fella af. Laskaútaukningar og stuttar umferðir (German short rows) Helstu skýringar á prjónatækni eru í uppskriftinni ásamt vísun á leiðbeiningamyndbönd. 

Við kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.

View full details