Skip to product information
1 of 4

Yrja knit

Yrja peysa

Yrja peysa

Regular price 1.190 kr.
Regular price Sale price 1.190 kr.
Sale Sold out
Shipping calculated at checkout.

Þessi mjúka og hlýja peysa er prjónuð úr grófu garni á stóra prjóna í áferðarmynstri. Mynstrið er einfalt og auðlært en setur mikinn svip á peysuna. Garnið í peysuna er úr náttúrulegum efnum; Alpaca, bómull og merinoull. Peysan er hönnuð í yfirstærð (oversized).

Prjónað er neðan frá og upp og ermarnar eru prjónaðar við bolinn með laskaúrtökum. Hálsmálið er mótað með því að prjóna fram og til baka. Fellt er af í hálsmáli og lykkjur svo teknar upp til að prjóna stroffið, sem síðan er lykkjað niður að innanverðu.

Stærðir: Val er um 9 stærðir. Bolvídd peysu: 97-102-110-117-123-130-137-143-150 sm.

Prjónfesta: 12 lykkjur og 14 umferðir í mynsturprjóni = 10×10 sm.

Prjónar: Hringprjónar og sokkaprjónar nr. 7 og 9 eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu.

Garn: Drops Wish (50 gr = 70 m). Hér sýnt í litnum Hvít þoka (nr 04). Garnmagn í peysu er u.þ.b. 500-500-550-600-650-700-750-750-800 g. Eins má nota Drops Andes eða blanda saman tveim eða fleiri fíngerðari garntegundum til að fá rétta prjónfestu.

Erfiðleikastig: 3-4 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap. Auk þess er notast við ítalskt uppfit, úrtökur og útaukningar til hægri og vinstri. Í löskum er tekið úr með því að prjóna 3 lykkjur saman bæði frá réttu og röngu. Helsta tækni er útskýrð í uppskriftinni og með hlekkjum á skýringarmyndbönd.

Við kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Mælt er með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti. 

View full details