Um Yrju og Eddu
Hæ – ég er Edda, heilinn og hendurnar á bak við Yrju knit. Velkomin í vefbúðina mína.
Ég hef inngróna þörf fyrir að skapa. Stundum bara eitthvað eða hvað sem er. Raða, breyta, bæta og búa til. Sjá hvað gerist. Finna út úr hlutum. Enda alin upp með handverks- og listafólk í kring um mig, sem aldrei féll verk úr hendi.
Ég hef prófað ýmsa farvegi fyrir þessa þörf. Hef saumað föt og prjónað frá því ég var unglingur, teiknað og málað, smíðað skart og jafnvel stöku húsgagn. Prjónaskapur hefur tekið yfir síðustu ár af ýmsum ástæðum. Það er hægt að prjóna nánast hvar sem er og ég þarf ekki að leggja undir mig heimilið (þótt það gerist reyndar stundum) eða stinga af á vinnustofu út í bæ. Þetta er áhugamál sem fer vel með fullri vinnu.
Í febrúar 2022 ræsti ég Yrju formlega og opnaði vefverslun með prjónauppskriftir. Hægt og rólega hafa nýjar uppskriftir bæst við og ég nota það svigrúm sem gefst til að skrifa uppskriftir og prjóna.
Prjón og uppskriftir
Á góðum sem erfiðum tímum hef ég fundið á eigin skinni allar jákvæðu aukaverkanirnar við að prjóna; það er gott fyrir bæði taugakerfið og sálina. Flókin mynstur og nýjar áskoranir kveikja upp í heilastarfseminni á meðan einföldu uppskriftirnar gefa færi á íhugun og kyrrð – eða spjalli og samveru (og stundum bara sjónvarpsglápi, það má líka). Það hefur svo veitt mér alveg nýja tegund af ánægju að hitta fólk á förnum vegi í peysu sem er prjónuð eftir uppskrift frá mér.
Íslensk náttúra og veðurfar eru endalaus uppspretta hugmynda en líka fólk, straumar og stefnur. Það tekur langan tíma að prjóna og ég vil að þeim tíma sé vel varið. Þegar ég bý til uppskrift legg ég áherslu á að flíkin geti átt langan líftíma. Þess vegna hallast ég mest að klassískum fatnaði, gjarnan í áferðarmynstri og með áhugaverðum útfærslum og smáatriðum. Það er mikil eftirspurn eftir lopapeysum á mínu heimili þannig að þær fá líka sinn sess. Góð snið og tímalaus hönnun sem hvílir á Norrænni handverkshefð er mitt andsvar við hraðtísku og kaupa-henda þróuninni sem er svo slæm fyrir umhverfið. Ég hanna ekkert sem ég myndi ekki vilja nota sjálf á mig eða mitt fólk, reyni að vanda val á garni og forðast gerviefni og garn með óljósan uppruna.
Flestar uppskriftirnar mínar eru saumlausar að mestu, koma í sex til átta fullorðinsstærðum, ungbarnastærðirnar eru frá 0-3ja mánaða til tveggja ára og barnastærðirnar frá tveggja til 12 og stundum 14 ára. Ég skrifa nákvæman texta og vísa á skýringar og myndbönd við helstu tækniatriði. Nöfnin sem ég vel á uppskriftirnar eru engin tilviljun, þau eiga sér flest vísun í íslenska sögu, goðafræði og náttúru.
Takk fyrir innlitið. Vonandi finnur þú eitthvað hér sem verður þér hvati til að taka upp prjónana, eiga góða stund og búa til eitthvað hlýtt og fallegt fyrir þig sjálfa/n eða þau sem þér þykir vænt um.