Þjónustuskilmálar
Almennt
Vefsíðan og verslunin er rekin af Yrju knit. Í neðangreindum texta vísa orðin "við", "okkur" og "okkar" til Yrju knit.
Með því að heimsækja síðuna og eftir atvikum eiga viðskipti við okkur telst þú bundin/nn af skilmálum þessum og öðrum skilmálum sem vísað er til í textanum. Hið sama gildir um viðbótarskilmála sem kunna að bætast við síðar, kjósir þú að nota þá þjónustu sem við bjóðum eftir að skilmálar eru uppfærðir.
Höfundaréttur
Öll ólögmæt notkun á síðunni og vörum sem þar eru seldar er bönnuð. Texti, vörumerki (logo), myndir og allt efni á vefnum www.yrjaknit.com er eign Yrju knit. Öll afritun, endurframleiðsla, eftirprentun, eftirhermun eða önnur misnotkun á höfundarvörðu efni, í heild eða að hluta, er með öllu óheimil. Uppskriftir YRJU eru einungis seldar til einkanota. Fjölföldun og/eða dreifing á uppskriftum er óheimil án skriflegs leyfis höfundar. Einnig er óheimilt að prjóna eftir uppskriftum til að selja afurðirnar, gefa þær öðrum til sölu eða nota uppskriftirnar í öðrum viðskiptalegum tilgangi. Mikil vinna liggur að baki uppskriftunum – Vinsamlegast virðið höfundarrétt.
Þjónusta og verð
Verð er uppgefið í íslenskum kr. Verð í versluninni geta breyst án fyrirvara. Við áskiljum okkur rétt til að breyta vöruúrvali og vöruverði hvenær sem er, sem og að hætta sölu á vörum án frekari tilkynninga og án ábyrgðar gagnvart viðskiptavinum. Við áskiljum okkur rétt á að hafna viðskiptum án skýringa, takmarka það heildarmagn sem selt er til einstakra aðila eða stærð einstakra pantana. Við reynum ávallt að hafa samband við kaupanda í ofangreindum tilfellum.
Athugið að litir á tölvuskjám gefa ekki alltaf nákvæma og rétta mynd af raunverulegu útliti. Við leggjum okkur fram um að gefa nákvæma og raunsanna lýsingu á vörum okkar. Lýsingar geta breyst án fyrirvara og frekari tilkynninga. Við ábyrgjumst ekki eiginleika varanna umfram vörulýsinguna. Verð og aðrar upplýsingar eru settar fram með fyrirvara um innsláttarvillur og önnur mistök. Allur réttur er áskilinn til að hætta við sölu þegar svo háttar til, t.d. vegna mistaka í verðupplýsingum á síðunni.
Við leggjum okkur fram um að leysa farsællega úr málum sem upp kunna að koma en getum þó ekki ábyrgst að hægt sé að verða við öllum óskum þar að lútandi.
Greiðsluskilmálar
Vörur eru afhentar gegn staðgreiðslu eða öðrum þeim greiðsluleiðum sem boðið er upp á í versluninni á hverjum tíma.
Meðferð greiðsluupplýsinga
Greiðsluuplýsingar eru ávallt varðar og eru á ábyrgð greiðslumiðlunarinnar sem við notum. Aðrar upplýsingar kunna að vera fluttar óvarðar af hýsingaraðila síðunnar. Ábyrgð á þeim er á höndum Shopify Inc. Sjá nánar í persónuverndarskilmálum.
Afhending: Slóð fyrir niðurhal uppskriftar er send á netfang kaupanda á stafrænu formi (hlekkur á PDF skjal) þegar greiðsla hefur verið staðfest. Hægt er að opna hverja slóð fjórum sinnum. Við ráðleggjum að vista skjalið strax á öruggum stað.
Skilaréttur: Eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að skila uppskriftum.
Uppskriftirnar okkar eru vandlega reiknaðar út, yfirlesnar og prufuprjónaðar. Samt er ekki útilokað að villur slæðst inn - við erum víst bara mannleg :) . Endilega láttu okkur vita ef þú finnur villu, svo við getum lagað hana fyrir næstu kaupendur.
Viðskipti í gegn um síðuna falla undir íslensk lög.
Ef upp koma vandamál eða spurningar er best að senda tölvupóst á yrjaknit@yrjaknit.com.