Fara í upplýsingar um vöru
1 af 4

Yrja knit

DUGGARAHÚFA BARNA

DUGGARAHÚFA BARNA

Almennt verð 800 kr.
Almennt verð Söluverð 800 kr.
Afsláttur Uppselt

Duggarahúfan er með sama mynstri og Duggarapeysan vinsæla. Mynstrið er einfalt og auðlært en gerir áferðina sérstaka og prjónaskapinn áhugaverðan. Húfan er með uppábrotið stroff og er því hlý og góð. Flott ein og sér eða sem viðbót við Duggarapeysuna.

Stærðir: 2-3 ára, 4-6 ára, 7-9 ára og 10-12 ára.

Prjónafesta: 22 lykkjur og 28 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm.

Prjónar: Stuttir hringprjónar og sokkaprjónar nr. 3,5 og 4 eða sú stærð sem þarf til að ná prjónafestu. Ef töfralykkja er notuð þarf langa hringprjóna í hvorri stærð.

Garn: Margar tegundir af garni koma til greina í húfuna, miða þarf við sk. Léttband/DK weight eða garn með prjónafestuna 21-24 lykkjur. Það þarf u.þ.b. 100 g í allar stærðirnar.

Erfiðleikastig: 2 af 5. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Ítölsk affelling (ef vill), útaukningar til hægri og vinstri. Skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru aftast í uppskriftinni.

Ath. að einnig er hægt að fá uppskrift fyrir sett með húfu, vettlingum og hálskraga.

Við kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Eindregið er mælt með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við 4 skipti. 

Skoða allar upplýsingar