Fara í upplýsingar um vöru
1 af 5

Yrja knit

DUGGARAVETTLINGAR BARNA

DUGGARAVETTLINGAR BARNA

Almennt verð 800 kr.
Almennt verð Söluverð 800 kr.
Afsláttur Uppselt
Sending reiknast síðar í kaupferlinu.

Duggaravettlingarnir eru með sama mynstri og Duggarapeysan vinsæla. Mynstrið er einfalt og auðlært en gerir áferðina sérstaka og prjónaskapinn áhugaverðan. Gefinn er möguleiki á venjulegu stroffi eða viðbættum kanti fyrir ofan stroffið til að stinga undir úlpuermar svo ekki verði bert á milli. Flottir vettlingar einir og sér eða sem viðbót við Duggarapeysuna.

Stærðir: 2-3 ára, 4-6 ára, 7-9 ára og 10-12 ára.

Prjónfesta: 22 lykkjur og 28 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm.

Prjónar: Sokkaprjónar nr. 3,5 og 4 eða sú stærð sem þarf til að ná prjónfestu. Ef töfralykkja er notuð þarf langa hringprjóna í hvorri stærð.

Garn: Margar tegundir af garni koma til greina, miða þarf við sk. Léttband/DK weight eða garn með prjónfestuna 21-24 lykkjur. Það þarf u.þ.b. 50-50-100-100 g í vettlingana.

Erfiðleikastig: 2 af 5. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Ítalskt uppfit (ef vill), útaukningar og úrtökur til hægri og vinstri. Skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru aftast í uppskriftinni.

Ath. að einnig er hægt að fá uppskrift fyrir sett með húfu, vettlingum og hálskraga í einum pakka.

Við kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Eindregið er mælt með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við 4 skipti. 

Skoða allar upplýsingar