Fara í upplýsingar um vöru
1 af 2

Yrja knit

YRJA HÚFA OG VETTLINGAR

YRJA HÚFA OG VETTLINGAR

Almennt verð 1.190 kr.
Almennt verð Söluverð 1.190 kr.
Afsláttur Uppselt

Yrjuhúfan og vettlingarnir eru fljótprjónuð á grófa prjóna úr mjúku, náttúrulegu garni. Mynstrið gerir áferðina sérstaka og prjónaskapinn áhugaverðan. Húfan er með tvöföldu þéttprjónuðu stroffi og því mjög hlý.
Bæði húfan og vettlingarnir eru prjónuð frá stroffi en eftir það tekur við einfalt áferðarmynstur.

Stærðir húfu/höfuðmál:
S-M (um 52-54 sm) – L-XL (um 56-58 sm).
Stærðir vettlinga/ummál:
S-M (um 20 sm) – L-XL (um 22 sm).

Prjónafesta: 12 lykkjur og 14 umferðir í áferðarmynstri = 10×10 sm.

Prjónar: Stuttir hringprjónar og sokkaprjónar nr. 6, 7 og 9 eða sú stærð sem þarf til að ná prjónafestu. Ef töfralykkja er notuð þarf langa hringprjóna í hvorri stærð.

Garn: Drops Wish; 150 – 200 gr. Sýnt á mynd í litnum Hvít þoka (04).

Erfiðleikastig: 2 af 5. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Ítalskt uppfit, útaukningar og úrtökur til hægri og vinstri. Skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru aftast í uppskriftinni.

Við kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Mælt er með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti. 

Skoða allar upplýsingar