Fara í upplýsingar um vöru
1 af 4

Yrja knit

YRJA PEYSA

YRJA PEYSA

Almennt verð 1.190 kr.
Almennt verð Söluverð 1.190 kr.
Afsláttur Uppselt

Þessi mjúka og hlýja peysa er prjónuð úr grófu garni á stóra prjóna í áferðarmynstri. Mynstrið er einfalt og auðlært en setur mikinn svip á peysuna. Garnið í peysuna er úr náttúrulegum efnum; Alpaca, bómull og merinoull. Peysan er hönnuð í yfirstærð (oversized).

Prjónað er neðan frá og upp og ermarnar eru prjónaðar við bolinn með laskaúrtökum. Hálsmálið er mótað með því að prjóna fram og til baka. Fellt er af í hálsmáli og lykkjur svo teknar upp til að prjóna stroffið, sem síðan er lykkjað niður að innanverðu.

Stærðir: Val er um 9 stærðir. Bolvídd peysu: 97-102-110-117-123-130-137-143-150 sm.

Prjónafesta: 12 lykkjur og 14 umferðir í mynsturprjóni = 10×10 sm.

Prjónar: Hringprjónar og sokkaprjónar nr. 7 og 9 eða sú stærð sem gefur rétta prjónafestu.

Garn: Drops Wish (50 gr = 70 m). Hér sýnt í litnum Hvít þoka (nr 04). Garnmagn í peysu er u.þ.b. 500-500-550-600-650-700-750-750-800 gr.

Erfiðleikastig: 3 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap. Auk þess er notast við ítalskt uppfit, úrtökur og útaukningar til hægri og vinstri. Í löskum er tekið úr með því að prjóna 3 lykkjur saman bæði frá réttu og röngu. Helsta tækni er útskýrð í uppskriftinni og með hlekkjum á skýringarmyndbönd.

Við kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Mælt er með að nota tölvu frekar en síma. Stundum þarf að leita í Niðurhal/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar/My Files möppunni til að finna skjalið. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti. 

Skoða allar upplýsingar