Fara í upplýsingar um vöru
1 af 4

Yrja knit

ASKUR HERRAPEYSA

ASKUR HERRAPEYSA

Almennt verð 1.190 kr.
Almennt verð Söluverð 1.190 kr.
Afsláttur Uppselt

Peysan Askur er með áferðarmynstri á bol og  skemmtilegum smáatriðum í hönnun. Sniðið er klassískt með hálsmáli sem er lægra að framan en aftan, svo peysan fer vel um háls og herðar. Peysan er frekar þykk og hlý og því góð í útivistina.

Prjónað er frá hálsmáli og niður. Í fyrstu er prjónað fram og til baka til að móta hálsmálið en síðan tengt í hring. Laskalykkjur skilja að ermar og bak- og framstykki, og er aukið út frá þeim niður berustykkið. Skipt er í bol og ermar sem hvort tveggja eru prjónuð í hring. Í lokin eru teknar upp lykkjur í hálsmáli til að prjóna stroff. Auðvelt er að aðlaga sídd og ermalengd að þörfum notandans.

Stærðir: 1 – 2 – 3 – 4 – 5 – 6 / Bolvídd peysu 93 – 104 – 113 – 120 – 127 – 136 sm.

Prjónfesta: 16 lykkjur og 20 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm.

Prjónar: Langir og stuttir hringprjónar nr. 5 og 6, sokkaprjónar nr. 5 – eða sú prjónastærð sem gefur rétta prjónfestu. Ef töfralykkja er notuð þarf ekki sokka- og ermaprjóna.

Garn: Garn að eigin vali sem gefur rétta prjónfestu. Peysan á myndinni er prjónuð úr Vams frá Rauma (50 gr = 83 m) í lit 003. Garnþörf u.þ.b. 850 – 950 – 1050 – 1150 – 1250 – 1350 m (til viðmiðunar).

Erfiðleikastig: 3 af 5. Meðal annars er eftirfarandi tækni beitt: Útaukning og úrtaka til hægri og vinstri, áferðarmynstur prjónað fram og til baka og í hring, lykkjur prjónaðar upp í hálsmáli, ítölsk affelling (ef vill). Mynsturteikning sem sýnir útaukningar, helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni. 

Við kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.

Skoða allar upplýsingar