Fara í upplýsingar um vöru
1 af 3

Yrja knit

DUGGARAHÚFA

DUGGARAHÚFA

Almennt verð 690 kr.
Almennt verð Söluverð 690 kr.
Afsláttur Uppselt
Stafræn prjónauppskrift - PDF skjal er sent í tölvupósti strax eftir kaup.
Tungumál uppskriftar

Duggarahúfan er með sama mynstri og Duggarapeysan vinsæla. Mynstrið er einfalt og auðlært en gerir áferðina sérstaka og prjónaskapinn áhugaverðan. Húfan er með uppábrotið stroff og er því hlý og góð. Töff húfa fyrir öll kyn — og fæst einnig í barnastærðum.

Stærðir  S/M og L/XL
Prjónfesta  19 lykkjur í mynsturprjóni = 10 sm
Garn  Þykkband / Worsted grófleiki  ·  Erfiðleikastig  1–2 af 5

Uppskriftin inniheldur leiðbeiningar, mynsturmynd og vísun á leiðbeiningamyndbönd.

Prjónaferlið

Prjónuð í hring frá kolli og niður, með útaukningum á kolli og síðan í mynstri niður að stroffi. Ítölsk affelling er teygjanleg og falleg en valkvæð.

Stærðir, mál og garnmagn

Stærð S/M L/XL
Fyrir höfuðmál (sm) 52–56 57–62
Garnþörf (g) 100 100

Ítarleg máltafla er í uppskriftinni.

Þar sem við prjónum öll með okkar eigin lagi er ekki hægt að gefa alveg nákvæma tölu fyrir garnmagn.

Efni, áhöld og aðferðir

Garn Þykkband (Worsted), eða garn sem gefur prjónfestuna 18–19 lykkjur. Húfan á myndinni er prjónuð úr Icewear Saga Wool (50 g = 100 m), lit 9001. Margar garntegundir koma til greina í húfuna, t.d. léttlopi og Cascade 220.
Prjónar Stuttir hringprjónar nr. 3,5 og 4,5 og sokkaprjónar nr. 4,5, eða sú stærð sem þarf til að ná prjónfestu — langir hringprjónar í hvorri stærð ef töfralykkja er notuð.
Aukahlutir Prjónamerki. Nál til að ganga frá endum, málband og skæri.
Helstu aðferðir Uppfit, prjónað slétt og brugðið, ítölsk affelling (ef vill). Útaukningar til hægri og vinstri. Einfalt mynsturprjón eftir mynsturmynd.

Sama húfa í barnastærðum: Duggarahúfa barna. Sama mynstur í peysu: Duggarapeysan.

Skoða allar upplýsingar