Yrja knit
DUGGARAHÚFA BARNA
DUGGARAHÚFA BARNA
Ekki tókst að hlaða upplýsingum um möguleika á að sækja
Duggarahúfan er með sama mynstri og Duggarapeysan vinsæla. Mynstrið er einfalt og auðlært en gerir áferðina sérstaka og prjónaskapinn áhugaverðan. Stroffið er með uppábroti, svo það liggur tvöfalt yfir eyrun. Fljótprjónuð húfa, falleg ein og sér eða með kraga og vettlingum í stíl.
Prjónfesta 22 lykkjur og 28 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm
Garn Léttband / DK grófleiki · Erfiðleikastig 2 af 5
Uppskriftin inniheldur mynsturmynd og vísun á leiðbeiningamyndbönd.
Prjónaferlið
Prjónað í hring frá kolli, mynstur og útaukningar. Þegar nægri lengd er náð er prjónað stroff og klárað með ítalskri affellingu (ef vill).
Stærðir, mál og garnmagn
| Stærð | 2–3 ára | 4–6 ára | 7–9 ára | 10–12 ára |
|---|---|---|---|---|
| Lengd með uppábroti (sm) | 20 | 21 | 22 | 23 |
| Fyrir höfuðummál (sm) | 48–51 | 51–53 | 53–54 | 54–56 |
| Garnþörf (g) | 100 | 100 | 100 | 100 |
Ítarleg máltafla er í uppskriftinni.
Þar sem við prjónum öll með okkar eigin lagi er ekki hægt að gefa alveg nákvæma tölu fyrir garnmagn.
Efni, áhöld og aðferðir
| Garn | Léttband (DK), eða garn sem gefur rétta prjónfestu. Húfan á myndinni er prjónuð úr Merino Extra Fine frá Drops (50 g = 105 m), lit 49. |
|---|---|
| Prjónar | Sokkaprjónar og/eða stuttur hringprjónn nr. 3 og 4, eða sú stærð sem þarf til að ná prjónfestunni. |
| Aukahlutir | Prjónamerki, þar á meðal umferðamerki. Nál til að ganga frá endum, málband og skæri. |
| Helstu aðferðir | Uppfit, prjónað slétt og brugðið í hring, affelling (ítölsk ef vill). Útaukningar til hægri og vinstri. Áferðarmynstur eftir mynsturmynd. |
Einnig er hægt að fá uppskrift að hálskraga og vettlingum, eða allt settið í einum pakka: Duggarasett barna — 1.690 kr. í stað 1.970.
Share
