Fara í upplýsingar um vöru
1 af 2

Yrja knit

FREYR BARNAPEYSA

FREYR BARNAPEYSA

Almennt verð 1,090 kr.
Almennt verð Söluverð 1,090 kr.
Afsláttur Uppselt
Stafræn prjónauppskrift - PDF skjal er sent í tölvupósti strax eftir kaup.
Tungumál uppskriftar

Barnaútgáfan af Frey herrapeysunni. Mynstrið er frekar óhefðbundið fyrir lopapeysu enda nær það yfir alla peysuna, auk þess sem hún er með laskaúrtökum en ekki hringberustykki eins og íslenska lopapeysan. Það er gaman að prjóna þessa peysu, enda alltaf eitthvað að gerast, og margar litasamsetningar koma til greina. Símynstrið gerir peysuna extra hlýja.

Stærðir  2–14 ára, 7 stærðir
Prjónfesta  18 lykkjur og 24 umferðir = 10×10 sm
Garn  Léttlopi (þykkband / Worsted grófleiki)  ·  Erfiðleikastig  3 af 5

Uppskriftin inniheldur ítarlegar skýringar, mynsturmynd og vísun á leiðbeiningamyndbönd.

Prjónaferlið

Prjónað er neðan frá og upp. Bolur og ermar eru prjónuð í hring, sameinuð á einn prjón við handveg og tekið úr berustykkinu með laskaúrtökum.

Stærðir, mál og garnmagn

Stærð 2 ára 4 ára 6 ára 8 ára 10 ára 12 ára 14 ára
Brjóstmál peysu (sm) 67 71 76 80 84 89 93
Sídd frá hálsmáli (sm) 34 36 43 50 52 57 60
Garnþörf, aðallitur (g) 150 150 150 200 200 200 250
Garnþörf, mynsturlitir (g) 50 + 50 50 + 50 50 + 50 100 + 100 100 + 100 100 + 150 100 + 150

Ítarlegri máltafla er í uppskriftinni.

Þar sem við prjónum öll með okkar eigin lagi er ekki hægt að gefa alveg nákvæma tölu fyrir garnmagn.

Efni, áhöld og aðferðir

Garn Álafoss léttlopi, eða annað ullargarn sem gefur rétta prjónfestu.
Prjónar Hringprjónar og sokkaprjónar nr. 3½ og 4½, eða sú stærð sem þarf til að ná prjónfestu — lengd hringprjóna fer eftir stærð peysunnar. Einn langur hringprjónn í hvorri stærð nægir ef töfralykkja er notuð.
Aukahlutir Prjónamerki, þar á meðal umferðamerki. Nál til að ganga frá endum, málband og skæri.
Helstu aðferðir Uppfit, prjónað slétt og brugðið, affelling. Útaukningar til hægri og vinstri og úrtökur þar sem þrjár lykkjur eru prjónaðar saman. Prjónað eftir litamynstri samkvæmt mynsturmynd.

Sama peysa í herrastærðum: Freyr lopapeysa.

 

Skoða allar upplýsingar