Yrja knit
KORPA VANGASKJÓL
KORPA VANGASKJÓL
Ekki tókst að hlaða upplýsingum um möguleika á að sækja
Þessi nýstárlegi fylgihlutur birtist mér fyrst á samfélagsmiðlum. Við fyrstu sýn þótti mér flíkin frekar undarleg en eftir að hafa séð hana aftur og aftur fór mig að langa að gera mína eigin útgáfu. Ég hef ekki séð útfærsluna með tvöföldu stroffprjóni, þannig að ég valdi að hafa mína þannig.
Þá var að finna heiti á fyrirbærið! Mér datt í hug vangaskjól því þetta er aðeins meira en eyrnaband. Vangaskjólið hentar vel við íslenskum aðstæðum, til dæmis í útivist, golfi eða á hlaupum þar sem þarf bæði der og skjól en kannski ekki alveg þykka húfu.
Prjónfesta u.þ.b. 18 lykkjur = 10 sm í sléttu prjóni
Garn Þykkband / Aran grófleiki · Erfiðleikastig 1 af 5
Uppskriftin inniheldur ítarlegar skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd.
Prjónaferlið
Ennisbandið er prjónað í hring en fliparnir og böndin fram og til baka. Böndin geta verið eins löng og hver vill; böndin á myndinni eru 50 sm.
Mál og garnmagn
| Stærð | Ein stærð |
|---|---|
| Heildarlengd að böndum (sm) | 20 |
| Garnmagn (g) | 50 |
Efni, áhöld og aðferðir
| Garn | Ein dokka af Peruvian frá Filcolana (50 g = 100 m) eða sambærilega grófu garni. Vangaskjólin á myndunum eru prjónuð úr lit 101. Ef þú vilt nota annað garn er gott að velja garn með prjónfestu u.þ.b. 18 lykkjur á 10 sm. |
|---|---|
| Prjónar | Hringprjónar nr. 4, 40 sm langir. Ef þú prjónar laust skaltu nota hálfu númeri minni prjóna en fara upp um hálfa stærð ef þú prjónar fast. Grófari prjónn til að fitja upp og fella af, ef vill. |
| Aukahlutir | Prjónamerki eða nælur (ef vill). Stoppunál, málband og skæri. Garnspotti eða lykkjusnúra til að geyma lykkjur á. |
| Helstu aðferðir | Uppfit, prjónað slétt og brugðið, affelling. Úrtökur til hægri og vinstri. Uppskriftin er auðveld og flest ættu að geta prjónað vangaskjólin án erfiðleika. |
Share
