Fara í upplýsingar um vöru
1 af 2

Yrja Knit

LOKI BARNAPEYSA

LOKI BARNAPEYSA

Almennt verð 1.190 kr.
Almennt verð Söluverð 1.190 kr.
Afsláttur Uppselt
Language/tungumál

Loki er klassísk lopapeysa sem hentar öllum kynjum og aldurshópum, hér í barnastærðum allt frá 9 mánaða til 12 ára. 

Prjónað er neðan frá og upp. Bolur og ermar eru prjónuð í hring og svo sameinuð á einn prjón við handveg. Eftir sameiningu eru prjónaðar stuttar umferðir yfir bakhluta berustykkisins til að hækka peysuna að aftan (hægt að sleppa). Svo er mynstrið prjónað eftir mynsturteikningu og lykkjum fækkað með reglulegu millibili. Að lokum er kraginn prjónaður og lykkjaður eða saumaður niður í innanvert hálsmálið.

Stærðir: 9 mánaða-1-2-4-6-8-10-12 ára / Bolvídd peysu 58-61-64-68-73-79-84-90 sm.

Prjónfesta: 18 lykkjur í sléttu prjóni = 10 sm.

Prjónar:  Fyrir bol og ermar: Hringprjónar nr. 4 ½  eða það sem gefur rétta prjónafestu; lengd fer eftir stærð peysu. Fyrir stroff: Sokkaprjónar nr. 3½ og hringprjónar 40 sm fyrir hálsmál og lengri fyrir stroff á bol. Einn langur hringprjónn í hvorri stærð er nóg ef töfralykkja er notuð.

Garn: Léttlopi (50 g = um 100 m) eða garn af sambærilegum grófleika. Peysan á myndinni er prjónuð úr litum A 0053 Mórauður, B 9423 Blágrænn og C 00860 Ljósljósmórauður. Það þarf u.þ.b. 150-150-200-250-250-250-300-350 g af léttlopa í aðallit, og 50 g af af mynsturlitunum í peysuna, nema í stærð 12 ára þarf 100 g í lit B.

Erfiðleikastig: 2-3 af 5. Uppskriftin krefst þekkingar á grunnatriðum í prjónaskap s.s. að fitja upp, prjóna slétt og brugðið, auka út til hægri og vinstri, fækka lykkjum með því að prjóna 2 saman, og fella af. Auk þess er prjónað er eftir litamynstri, tví- og þríbandaprjón og gerðar stuttar umferðir ef vill. Mynsturmyndir, helstu skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru í uppskriftinni. 

Við kaup á uppskrift færð þú tölvupóst með hlekk á pdf skjal til niðurhals. Um leið og smellt er á hlekkinn hleðst skjalið sjálfkrafa niður. Stundum þarf að leita í Niðurhal/Downloads möppunni eða Skrárnar mínar/My Files möppunni til að finna það. Niðurhal er takmarkað við fjögur skipti.

Skoða allar upplýsingar