Fara í upplýsingar um vöru
1 af 4

Yrja knit

DUGGARAHÚFA BARNA

DUGGARAHÚFA BARNA

Almennt verð 690 kr.
Almennt verð Söluverð 690 kr.
Afsláttur Uppselt
Stafræn prjónauppskrift - PDF skjal er sent í tölvupósti strax eftir kaup.
Tungumál uppskriftar

Duggarahúfan er með sama mynstri og Duggarapeysan vinsæla. Mynstrið er einfalt og auðlært en gerir áferðina sérstaka og prjónaskapinn áhugaverðan. Stroffið er með uppábroti, svo það liggur tvöfalt yfir eyrun. Fljótprjónuð húfa, ein og sér eða með kraga og vettlingum í stíl.

Stærðir  2–3  ·  4–6  ·  7–9  ·  10–12 ára  ·  Höfuðummál  48–56 sm
Prjónfesta  22 lykkjur og 28 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm
Garnþörf  100–150 g  ·  Erfiðleikastig  2 af 5

Uppskriftin inniheldur mynsturmynd og vísun á leiðbeiningamyndbönd.

Prjónaferlið

Prjónað í hring frá kolli, mynstur og útaukningar. Þegar nægri lengd er náð er prjónað stroff og klárað með ítalskri affellingu (ef vill).

Stærðir, mál og garnmagn

Stærð 2–3 ára 4–6 ára 7–9 ára 10–12 ára
Lengd með uppábroti (sm) 20 21 22 23
Fyrir höfuðummál (sm) 48–51 51–53 53–54 54–56
Garnþörf (g) 100 100 150 150

Við prjónum öll með okkar eigin lagi og því er ekki hægt að gefa nákvæmt garnmagn.

Garn og áhöld

Garn Léttband (DK), eða garn sem gefur rétta prjónfestu. Húfan á myndinni er prjónuð úr Merino Extra Fine frá Drops (50 g = 105 m), lit 49.
Prjónar Sokkaprjónar og/eða stuttur hringprjónn nr. 3 og 4, eða sú stærð sem þarf til að ná prjónfestunni.
Aukahlutir Prjónamerki, þar á meðal umferðamerki. Nál til að ganga frá endum, málband og skæri.
Helstu aðferðir Uppfit, prjónað slétt og brugðið í hring, affelling (ítölsk ef vill). Útaukningar til hægri og vinstri. Áferðarmynstur eftir mynsturmynd.

Einnig er hægt að fá uppskrift að hálskraga og vettlingum, eða fyrir allt settið í einum pakka: Duggarasett barna — 1.690 kr.

Skoða allar upplýsingar