Fara í upplýsingar um vöru
1 af 5

Yrja knit

DUGGARAVETTLINGAR BARNA

DUGGARAVETTLINGAR BARNA

Almennt verð 690 kr.
Almennt verð Söluverð 690 kr.
Afsláttur Uppselt
Stafræn prjónauppskrift - PDF skjal er sent í tölvupósti strax eftir kaup.
Tungumál uppskriftar

Duggaravettlingarnir eru með sama mynstri og Duggarapeysan vinsæla. Mynstrið er einfalt og auðlært en gerir áferðina sérstaka og prjónaskapinn áhugaverðan. Gefinn er möguleiki á venjulegu stroffi eða viðbættum kanti fyrir ofan stroffið til að stinga undir úlpuermar svo ekki verði bert á milli. Flottir vettlingar einir og sér eða sem viðbót við Duggarapeysuna.

Stærðir  2–3  ·  4–6  ·  7–9  ·  10–12 ára  ·  Handarummál  14–19 sm
Prjónfesta  22 lykkjur og 28 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm
Garnþörf  50–100 g  ·  Erfiðleikastig  2 af 5

Uppskriftin inniheldur mynsturmynd og vísun á leiðbeiningamyndbönd.

Prjónaferlið

Prjónaðir í hring frá stroffi og upp. Mynstrið liggur yfir handarbakið en lófinn er í sléttu prjóni. Engir saumar í lokin. Ítalskt uppfit gefur mjúka og teygjanlega brún þótt það sé ekki nauðsynlegt.

Stærðir, mál og garnmagn

Stærð 2–3 ára 4–6 ára 7–9 ára 10–12 ára
Lengd vettlings (sm) 15 18 21 23
Handarummál (sm) 14 16 17 19
Garnþörf (g) 50 50–100 100 100

Garnþörfin er áætluð, við prjónum öll með okkar eigin lagi og því er ekki hægt að gefa alveg nákvæma tölu.

Garn og áhöld

Garn Léttband (DK), eða garn sem gefur rétta prjónfestu. Vettlingarnir á myndinni eru prjónaðir úr Merino Extra Fine frá Drops (50 g = 105 m), lit 49.
Prjónar Sokkaprjónar nr. 3 og 4, eða sú stærð sem þarf til að ná prjónfestunni.
Aukahlutir Prjónamerki, þar á meðal umferðamerki. Band eða lykkjuhaldari. Nál til að ganga frá endum, málband og skæri.
Helstu aðferðir Uppfit (ítalskt ef vill), prjónað slétt og brugðið í hring, affelling. Útaukningar og úrtökur. Lykkjur teknar upp. Áferðarmynstur eftir mynsturmynd.

Einnig er hægt að fá uppskrift að húfu og kraga með sama mynstri - eða allt settið með húfu, vettlingum og hálskraga í einum pakka.

 

Skoða allar upplýsingar