1
/
af
4
Yrja knit
DUGGARAKRAGI BARNA
DUGGARAKRAGI BARNA
Almennt verð
590 kr.
Almennt verð
Söluverð
590 kr.
Stafræn prjónauppskrift - PDF skjal er sent í tölvupósti strax eftir kaup.
Ekki tókst að hlaða upplýsingum um möguleika á að sækja
Duggarakraginn er með sama mynstri og Duggarapeysan vinsæla. Mynstrið er einfalt og auðlært en gerir áferðina sérstaka og prjónaskapinn áhugaverðan. Gefinn er möguleiki á einföldu stroffi eða stroffi með uppábroti. Flottur kragi einn og sér eða með húfu og vettlingum í stíl.
Stærðir 2–3 · 4–6 · 7–9 · 10–12 ára
Prjónfesta 22 lykkjur og 28 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm
Garnþörf 100–150 g
Prjónfesta 22 lykkjur og 28 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm
Garnþörf 100–150 g
Erfiðleikastig 1-2 af 5
Uppskriftin inniheldur mynsturmynd og vísun á leiðbeiningamyndbönd.
Prjónaferlið
Stroffið er prjónað í hring. Síðan er skipt í fram- og bakstykki sem prjónuð eru fram og til baka í áferðarmynstri.
Stærðir, mál og garnmagn
| Stærð | 2–3 ára | 4–6 ára | 7–9 ára | 10–12 ára |
|---|---|---|---|---|
| Lengd (sm) | 17 | 18 | 20 | 21 |
| Garnþörf (g) | 100 | 100 | 150 | 150 |
Við prjónum öll með okkar eigin lagi og því er ekki hægt að gefa nákvæmt garnmagn.
Garn og áhöld
| Garn | Léttband (DK), eða garn sem gefur rétta prjónfestu. Kraginn á myndinni er prjónaður úr Merino Extra Fine frá Drops (50 g = 105 m), lit 49. |
|---|---|
| Prjónar | Sokkaprjónar og/eða stuttur hringprjónn nr. 3 og 4, eða sú stærð sem þarf til að ná prjónfestunni. |
| Aukahlutir | Prjónamerki, þar á meðal umferðamerki. Band eða lykkjuhaldari. Nál til að ganga frá endum, málband og skæri. |
| Helstu aðferðir | Uppfit (ítalskt ef vill), prjónað slétt og brugðið bæði í hring og fram og til baka, affelling. Útaukning. Áferðarmynstur eftir mynsturmynd. Skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru aftast í uppskriftinni. |
Einnig er hægt að fá uppskrift að húfu og vettlingum, eða fyrir allt settið í einum pakka: Duggarasett barna.
Share
