1
/
af
4
Yrja knit
DUGGARASETT BARNA
DUGGARASETT BARNA
Almennt verð
1,690 kr.
Almennt verð
Söluverð
1,690 kr.
Stafræn prjónauppskrift - PDF skjal er sent í tölvupósti strax eftir kaup.
Ekki tókst að hlaða upplýsingum um möguleika á að sækja
Uppskrift að Duggarahúfu, vettlingum og hálskraga saman í setti í stærðum frá tveggja til tólf ára.
Duggarasettið er með sama mynstri og Duggarapeysan vinsæla. Mynstrið er einfalt og auðlært en gerir áferðina sérstaka og prjónaskapinn áhugaverðan. Húfan er prjónuð frá kolli og niður, kraginn og vettlingarnir frá stroffi.
Stærðir 2–3 · 4–6 · 7–9 · 10–12 ára
Prjónfesta 22 lykkjur og 28 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm
Garnþörf 200–350 g í allt settið
Prjónfesta 22 lykkjur og 28 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm
Garnþörf 200–350 g í allt settið
Erfiðleikastig 2 af 5
Uppskriftin inniheldur mynsturmyndir og vísun á leiðbeiningamyndbönd.
Flíkurnar þrjár
Húfan er með uppábrotið stroff og er því hlý og góð.
Kragann má hafa með einföldu stroffi eða rúllukraga.
Vettlingarnir eru með venjulegu stroffi en líka gefinn möguleiki á að prjóna kant fyrir ofan stroffið til að stinga undir úlpuermar.
Stærðir og garnmagn
| Stærð | 2–3 ára | 4–6 ára | 7–9 ára | 10–12 ára |
|---|---|---|---|---|
| Garnþörf í allt settið (g) | 200 | 250 | 250-300 | 350 |
Garn og áhöld
| Garn | Léttband, eða garn með prjónfestuna 21–24 lykkjur. Margar tegundir af garni koma til greina en mælt er með hreinu ullarbandi eða blöndu af náttúrulegum efnum, t.d. alpaca og ull. |
|---|---|
| Prjónar | Stuttir hringprjónar og sokkaprjónar nr. 3 og 4, eða sú stærð sem þarf til að ná prjónfestu. Ef töfralykkja er notuð þarf langa hringprjóna í hvorri stærð. |
| Aukahlutir | Prjónamerki, lykkjusnúra eða garn til að geyma lykkjur á, skæri og stoppunál. |
| Helstu aðferðir | Ítalskt uppfit og affelling (ef vill), útaukningar og úrtökur til hægri og vinstri. Mynstur prjónað eftir mynsturmynd, útaukningar í mynstri. Skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru aftast í uppskriftinni. |
| Erfiðleikastig | 2 af 5 |
Það er líka hægt að kaupa hverja uppskrift fyrir sig — húfa, kragi eða vettlingar.
Allt byrjaði þetta með duggarapeysunni sem fæst líka í barnastærðum.
Share
