Fara í upplýsingar um vöru
1 af 4

Yrja knit

DUGGARASETT BARNA

DUGGARASETT BARNA

Almennt verð 1,690 kr.
Almennt verð Söluverð 1,690 kr.
Afsláttur Uppselt
Stafræn prjónauppskrift - PDF skjal er sent í tölvupósti strax eftir kaup.
Tungumál uppskriftar

Húfa, vettlingar og hálskragi saman í setti, öll með sama mynstri og Duggarapeysan vinsæla. Mynstrið er einfalt og auðlært en gerir áferðina sérstaka og prjónaskapinn áhugaverðan. Hver flík hefur sinn valmöguleika, svo settið má sníða að barninu sem á að nota það.

Stærðir  2–12 ára, 4 stærðir
Prjónfesta  22 lykkjur og 28 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm
Garn  Léttband / DK grófleiki  ·  Erfiðleikastig  2 af 5

Uppskriftin inniheldur mynsturmyndir og vísun á leiðbeiningamyndbönd.

Flíkurnar þrjár

Húfan er með uppábrotið stroff og er því hlý og góð.

Kragann má hafa með einföldu stroffi eða rúllukraga.

Vettlingarnir eru með venjulegu stroffi, en líka er gefinn möguleiki á kanti fyrir ofan stroffið til að stinga undir úlpuermar.

Allar flíkurnar eru prjónaðar í hring og engir saumar. Húfan er prjónuð frá kolli, kraginn og vettlingarnir frá stroffi.

Stærðir og garnmagn

Stærð 2–3 ára 4–6 ára 7–9 ára 10–12 ára
Garnþörf í allt settið (g) 200 200 250 300

Garnmagnið er fyrir húfu, kraga og vettlinga samanlagt, vettlinga með kanti og kraga með rúllukraga. Ef kanti er sleppt á vettlingum og standkragi gerður á hálskraganum þarf einni dokku minna af garni í minnstu og stærstu stærðinni, í uppgefnu garni.

Þar sem við prjónum öll með okkar eigin lagi er ekki hægt að gefa alveg nákvæma tölu fyrir garnmagn.

Efni, áhöld og aðferðir

Garn Léttband (DK), eða garn með prjónfestuna 21–24 lykkjur. Margar tegundir koma til greina en mælt er með hreinu ullarbandi eða blöndu af náttúrulegum efnum, t.d. alpaca og ull. Settið á myndunum er prjónað úr Merino Extra Fine frá Drops (50 g = 105 m), lit 49.
Prjónar Stuttir hringprjónar og sokkaprjónar nr. 3 og 4, eða sú stærð sem þarf til að ná prjónfestu — langir hringprjónar í hvorri stærð ef töfralykkja er notuð.
Aukahlutir Prjónamerki, lykkjusnúra eða garn til að geyma lykkjur á, nál til að ganga frá endum, málband og skæri.
Helstu aðferðir Ítalskt uppfit og affelling (ef vill), útaukningar og úrtökur til hægri og vinstri. Mynstur prjónað eftir mynsturmynd, útaukningar í mynstri.

Hverja uppskrift má einnig kaupa staka: húfa, kragi eða vettlingar — samtals 1.970 kr. í stað 1.690 fyrir settið.

Allt byrjaði þetta með Duggarapeysunni, sem fæst líka í barnastærðum.

Skoða allar upplýsingar