Fara í upplýsingar um vöru
1 af 4

Yrja knit

DUGGARAKRAGI BARNA

DUGGARAKRAGI BARNA

Almennt verð 590 kr.
Almennt verð Söluverð 590 kr.
Afsláttur Uppselt
Stafræn prjónauppskrift - PDF skjal er sent í tölvupósti strax eftir kaup.
Tungumál uppskriftar

Duggarakraginn er með sama mynstri og Duggarapeysan vinsæla. Mynstrið er einfalt og auðlært en gerir áferðina sérstaka og prjónaskapinn áhugaverðan. Gefinn er möguleiki á einföldu stroffi eða stroffi með uppábroti. Flottur kragi einn og sér eða með húfu og vettlingum í stíl.

Stærðir  2–12 ára, 4 stærðir
Prjónfesta  22 lykkjur og 28 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm
Garn  Léttband / DK grófleiki  ·  Erfiðleikastig  1–2 af 5

Uppskriftin inniheldur mynsturmynd og vísun á leiðbeiningamyndbönd.

Prjónaferlið

Stroffið er prjónað í hring. Síðan er skipt í fram- og bakstykki sem prjónuð eru fram og til baka í áferðarmynstri.

Stærðir, mál og garnmagn

Stærð 2–3 ára 4–6 ára 7–9 ára 10–12 ára
Lengd (sm) 17 18 20 21
Garnþörf (g) 100 100 100 100

Þar sem við prjónum öll með okkar eigin lagi er ekki hægt að gefa alveg nákvæma tölu fyrir garnmagn.

Efni, áhöld og aðferðir

Garn Léttband (DK), eða garn sem gefur rétta prjónfestu. Kraginn á myndinni er prjónaður úr Merino Extra Fine frá Drops (50 g = 105 m), lit 49.
Prjónar Sokkaprjónar og/eða stuttur hringprjónn nr. 3 og 4, eða sú stærð sem þarf til að ná prjónfestunni.
Aukahlutir Prjónamerki, þar á meðal umferðamerki. Band eða lykkjuhaldari. Nál til að ganga frá endum, málband og skæri.
Helstu aðferðir Uppfit (ítalskt ef vill), prjónað slétt og brugðið bæði í hring og fram og til baka, affelling. Útaukning. Áferðarmynstur eftir mynsturmynd.

Einnig er hægt að fá uppskrift að húfu og vettlingum, eða allt settið í einum pakka: Duggarasett barna — 1.690 kr. 

Skoða allar upplýsingar