Fara í upplýsingar um vöru
1 af 4

Yrja knit

DUGGARASETT BARNA

DUGGARASETT BARNA

Almennt verð 1,690 kr.
Almennt verð Söluverð 1,690 kr.
Afsláttur Uppselt
Stafræn prjónauppskrift - PDF skjal er sent í tölvupósti strax eftir kaup.
Tungumál uppskriftar

Uppskrift að Duggarahúfu, vettlingum og hálskraga saman í setti í stærðum frá tveggja til tólf ára.

Duggarasettið er með sama mynstri og Duggarapeysan vinsæla. Mynstrið er einfalt og auðlært en gerir áferðina sérstaka og prjónaskapinn áhugaverðan. Húfan er prjónuð frá kolli og niður, kraginn og vettlingarnir frá stroffi.

Stærðir  2–3  ·  4–6  ·  7–9  ·  10–12 ára
Prjónfesta  22 lykkjur og 28 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm
Garnþörf  200–350 g í allt settið   
Erfiðleikastig  2 af 5
Uppskriftin inniheldur mynsturmyndir og vísun á leiðbeiningamyndbönd.

Flíkurnar þrjár

Húfan er með uppábrotið stroff og er því hlý og góð.

Kragann má hafa með einföldu stroffi eða rúllukraga.

Vettlingarnir eru með venjulegu stroffi en líka gefinn möguleiki á að prjóna kant fyrir ofan stroffið til að stinga undir úlpuermar.

Stærðir og garnmagn

Stærð 2–3 ára 4–6 ára 7–9 ára 10–12 ára
Garnþörf í allt settið (g) 200 250 250-300 350


Garn og áhöld

Garn Léttband, eða garn með prjónfestuna 21–24 lykkjur. Margar tegundir af garni koma til greina en mælt er með hreinu ullarbandi eða blöndu af náttúrulegum efnum, t.d. alpaca og ull.
Prjónar Stuttir hringprjónar og sokkaprjónar nr. 3 og 4, eða sú stærð sem þarf til að ná prjónfestu. Ef töfralykkja er notuð þarf langa hringprjóna í hvorri stærð.
Aukahlutir Prjónamerki, lykkjusnúra eða garn til að geyma lykkjur á, skæri og stoppunál.
Helstu aðferðir Ítalskt uppfit og affelling (ef vill), útaukningar og úrtökur til hægri og vinstri. Mynstur prjónað eftir mynsturmynd, útaukningar í mynstri. Skýringar og vísun á leiðbeiningamyndbönd eru aftast í uppskriftinni.
Erfiðleikastig 2 af 5
Það er líka hægt að kaupa hverja uppskrift fyrir sig — húfa, kragi eða vettlingar.
Allt byrjaði þetta með duggarapeysunni sem fæst líka í barnastærðum.
Skoða allar upplýsingar