Yrja knit
DUGGARASETT BARNA
DUGGARASETT BARNA
Ekki tókst að hlaða upplýsingum um möguleika á að sækja
Húfa, vettlingar og hálskragi saman í setti, öll með sama mynstri og Duggarapeysan vinsæla. Mynstrið er einfalt og auðlært en gerir áferðina sérstaka og prjónaskapinn áhugaverðan. Hver flík hefur sinn valmöguleika, svo settið má sníða að barninu sem á að nota það.
Prjónfesta 22 lykkjur og 28 umferðir í sléttu prjóni = 10×10 sm
Garn Léttband / DK grófleiki · Erfiðleikastig 2 af 5
Uppskriftin inniheldur mynsturmyndir og vísun á leiðbeiningamyndbönd.
Flíkurnar þrjár
Húfan er með uppábrotið stroff og er því hlý og góð.
Kragann má hafa með einföldu stroffi eða rúllukraga.
Vettlingarnir eru með venjulegu stroffi, en líka er gefinn möguleiki á kanti fyrir ofan stroffið til að stinga undir úlpuermar.
Allar flíkurnar eru prjónaðar í hring og engir saumar. Húfan er prjónuð frá kolli, kraginn og vettlingarnir frá stroffi.
Stærðir og garnmagn
| Stærð | 2–3 ára | 4–6 ára | 7–9 ára | 10–12 ára |
|---|---|---|---|---|
| Garnþörf í allt settið (g) | 200 | 200 | 250 | 300 |
Garnmagnið er fyrir húfu, kraga og vettlinga samanlagt, vettlinga með kanti og kraga með rúllukraga. Ef kanti er sleppt á vettlingum og standkragi gerður á hálskraganum þarf einni dokku minna af garni í minnstu og stærstu stærðinni, í uppgefnu garni.
Þar sem við prjónum öll með okkar eigin lagi er ekki hægt að gefa alveg nákvæma tölu fyrir garnmagn.
Efni, áhöld og aðferðir
| Garn | Léttband (DK), eða garn með prjónfestuna 21–24 lykkjur. Margar tegundir koma til greina en mælt er með hreinu ullarbandi eða blöndu af náttúrulegum efnum, t.d. alpaca og ull. Settið á myndunum er prjónað úr Merino Extra Fine frá Drops (50 g = 105 m), lit 49. |
|---|---|
| Prjónar | Stuttir hringprjónar og sokkaprjónar nr. 3 og 4, eða sú stærð sem þarf til að ná prjónfestu — langir hringprjónar í hvorri stærð ef töfralykkja er notuð. |
| Aukahlutir | Prjónamerki, lykkjusnúra eða garn til að geyma lykkjur á, nál til að ganga frá endum, málband og skæri. |
| Helstu aðferðir | Ítalskt uppfit og affelling (ef vill), útaukningar og úrtökur til hægri og vinstri. Mynstur prjónað eftir mynsturmynd, útaukningar í mynstri. |
Hverja uppskrift má einnig kaupa staka: húfa, kragi eða vettlingar — samtals 1.970 kr. í stað 1.690 fyrir settið.
Allt byrjaði þetta með Duggarapeysunni, sem fæst líka í barnastærðum.
Share
